Ertu komin/n með leið á hefðbundnum kanilsnúðum? Þá vil ég mæla með þessum litlu dúllum – þó ég fái aldrei nóg af mínum langbestu kanilsnúðum.
Þessir snúðar, maður minn! Þvílíkur unaður! Epli + kanill + karamella – þetta getur ekki klikkað!
Svo er þetta svo ofureinfalt. Tilvalið sætabrauð með kaffinu á tyllidögum, eða bara á hverjum degi. Allt er gott í hófi!
Himneskir epla- og karamellusnúðar
|
|
Hráefni
Deig
- 2 3/4bolli Kornax-hveiti(plús meira til að fletja deigið út)
- 1/4bolli sykur
- 1bréf þurrger
- 1tsk salt
- 2msk bráðið smjör
- 1bolli volg mjólk
- 1 Nesbú-egg
Fylling
- 2bollar epli(afhýdd og skorin í litla bita)
- 4tsk smjör
- 2msk púðursykur
- 1/2tsk kanill
- 1/2bolli þykk karamellusósa
Leiðbeiningar
Deig
- Blandið hveiti, sykur, þurrgeri og salti saman í skál.
- Blandið mjólk og smjöri saman í annarri skál.
- Búið til holu í þurrefnablönduna og hellið mjólkurblöndu og eggi ofan í holuna.
- Hnoðið vel saman, setjið plastfilmu yfir skálina og leyfið deiginu að hefast við stofuhita í um 30 mínútur.
Fylling
- Bræðið smjör á pönnu yfir meðalhita.
- Bætið eplum, púðursykri og kanil saman við smjörið og eldið í 5-7 mínútur, eða þar til eplin eru mjúk.
- Fletjið deigið út og penslið það með þykkri karamellusósu.
- Dreifið eplablöndunni yfir karamellusósuna en reynið að skilja mestallan vökvann eftir í pönnunni.
- Rúllið deiginu upp og skerið í bita.
- Raðið snúðunum á pönnu eða í eldfast mót og leyfið þeim að hefast aftur undir viskastykki á meðan þið hitið ofninn í 190°C.
- Bakið snúðana í um 20 mínútur.