Kornax bað mig um að töfra fram heilhveitivöfflur í hollari kantinum þar sem janúar er heilhveitimánuður hjá fyrirtækinu.
Ég tók þeirri áskorun þó það væri ekki alveg í mínum anda að sleppa sykrinum en hér er afraksturinn. Og þið verðið að trúa mér þegar ég segi að þessar vöfflur eru alveg sjúklega góðar!
Heilhveitivöfflur með karamellueplum
|
|
Hráefni
Vöfflur
- 3bollar Kornax-heilhveiti
- 2tsk sjávarsalt
- 4tsk lyftiduft
- 1bolli olía
- 2 Nesbú-egg
- 2 bollar mjólk(+ 2 msk)
- 2msk brætt smjör
- 2tsk vanilludropar
- 4msk sýrður rjómi
Karamelluepli
- 2 epli(skorin í sneiðar)
- 1msk smjör
- 2msk púðursykur
- 1tsk rjómi
- 1tsk vanilludropar
Sætur rjómaostur
- 1bolli mjúkur Philadelphia-rjómaostur
- 8msk hlynsíróp
- 2tsk vanilludropar
Leiðbeiningar
Vöfflur
- Blandið öllum þurrefnum saman í skál og setjið til hliðar.
- Blandið olíu, eggjum, mjólk, smjöri, vanilludropum og sýrðum rjóma vel saman í annarri skál.
- Blandið þurrefnunum varlega saman við og passið að hræra ekki of vel saman, bara rétt þangað til allt er búið að blandast.
- Skellið í vöfflujárnið og búið til karamellueplin á meðan vöfflurnar bakast.
Karamelluepli
- Bræðið smjör og púðursykur saman á pönnu yfir meðalhita.
- Þegar blandan byrjar að sjóða hellið þið rjómanum saman við og slökkvið á hellunni.
- íðan blandið þið vanilludropunum saman við og loks er eplunum velt upp úr blöndunni.
- Leyfið þessu að malla á heitri hellunni (ekki kveikja samt aftur á henni) á meðan þið gerið vöfflurnar, eða þar til eplin eru orðin mjúk viðkomu.
Sætur rjómaostur
- Blandið öllum hráefnum vel saman og berið fram með vöfflunum og eplunum.