Ég er úr Breiðholtinu og yfirleitt ekki með mjög fágaðan smekk. Þess vegna er ég frekar ódýr í reksti. Nema þegar kemur að súkkulaði. Ég elska nefnilega fátt meira í þessum heimi en að háma í mig trufflur frá Lindt – alveg sama með hvaða bragði.
Þess vegna ákvað ég að prófa þessar bollakökur og sá ekki eftir því. Ekki skemmir fyrir að þær eru einstaklega jólalegar út af Jello-inu sem ég smellti með í þær. Best er að borða þessar volgar á meðan guðdómlega Lindt-trufflan er ekki búin að storkna.
Eldrauðar bollakökur með Lindt-trufflu
|
|
Hráefni
- 1bolli hveiti
- 1/2tsk matarsódi
- 3/4bolli sykur
- 3/4bolli mjólk
- 1/2bolli olía
- 1 egg
- 1 eggjahvíta
- 2msk jarðarberja Jello
- Lindt-trufflur úr rjómasúkkulaði
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 175°C. Blandið hveiti, matarsóda, sykri, mjólk, olíu, eggi og eggjahvítu saman í skál.
- Blandið Jello-i saman við og hrærið vel.
- Setjið deigið í möffinsform og bakið í um fimm mínútur.
- Takið kökurnar úr ofninum og þrýstið Lindt-trufflu í miðjuna á hverri og einni. Bakið í 10 til 12 mínútur til viðbótar.
- Leyfið kökunum að kólna aðeins. Þeir sem vilja geta brætt smá súkkulaði til að skreyta þær með.