Þessi Snickers-eplakaka er algjört æði, þó ég segi sjálf frá. Og þó þú kunnir ekkert að baka – og ég meina EKKERT – þá geturðu búið til þessa köku og heimilisfólkið á eftir að dýrka þig!

Þessi kláraðist á núll einni heima hjá mér og góða við hana er að það er alltaf hægt að hita hana upp daginn eftir og hún er alveg jafn góð – ef ekki betri.

Ég er vön því að bjóða upp á karamellusósu með eplaköku en í þessu tilfelli þarf það ekki út af öllu Snickers-inu sem er í þessari köku. Svo er líka æðislegt að finna mjög vægt hnetubragð sem kemur frá Snickers-inu. Geggjuð blanda og geggjuð Snickers-eplakaka!

Ég get ekki ítrekað það nógu mikið að þessi Snickers-eplakaka er ofureinföld!

Þannig að ekki hika, farið rakleiðis inn í eldhús núna og skellið í þessa!


Ofureinföld Snickers-eplakaka
Hráefni
Mulningur
Eplablanda
Leiðbeiningar
Mulningur
  1. Hitið ofninn í 180°C. Blandið öllum hráefnum í mulninginn saman þar til blandan er orðin að grófri mylsnu. Kælið í ísskáp á meðan þið búið til fyllinguna.
Eplablanda
  1. Blandið hveiti og smjöri vel saman í skál. Hrærið því næst sítrónusafa og vanilludropum vel saman við.
  2. Bætið púðursykri, kanil og salti saman við og hellið þessari blöndu yfir eplin og hrærið svo hún hylji eplin.
  3. Hellið eplablöndunni í eldfast mót. Raðið Snickers-bitunum yfir blönduna.
  4. Dreifið mulningnum yfir. Bakið í 30 til 35 mínútur. Leyfið kökunni að kólna í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið berið hana fram - að sjálfsögðu með rjóma eða vanilluís.

Umsagnir

Umsagnir