Aftur býð ég upp á smákökur í þessum mánuði, einfaldlega út af því að það er svo gaman að baka smákökur og svo hentugt að eiga nokkrar í dunki þegar gesti ber óvænt að garði. Og þar sem ég er í fæðingarorlofi hentar það mér einstaklega vel.
Þessi uppskrift er, eins og flestallar á þessu bloggi, mjög einföld og aðstoðaði fimm ára gömul dóttir mín mig með þessar eins og herforinginn sem hún er. Þær eru keppniskökur þegar búið er að dýfa þeim í hvíta súkkulaðið en því má líka alveg sleppa og háma þær í sig einar og sér.
Kanilkökur með hvítu súkkulaði
|
|
Hráefni
- 225g mjúkt smjör
- 1 1/2bolli sykur
- 2 stór egg
- 2tsk vanilludropar
- 2 3/4bolli hveiti
- 2tsk cream of tartar
- 1tsk matarsódi
- 1/4tsk salt
- 3msk sykur
- 1 1/2msk kanill
- 200g hvítt súkkulaði(þetta er bara nóg á hluta af kökunum)
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 190°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur.
- Blandið smjöri, 1 1/2 bolla af sykri, eggjum og vanilludropum vel saman.
- Bætið hveiti, cream of tartar, matarsóda og salti vel saman við.
- Blandið 3 matskeiðum af sykri og kanil saman í lítilli skál.
- Skiptið deiginu í 48 hluta. Dýfið hverjum hluta í kanilsykurinn og mótið síðan kúlu úr deiginu. Dýfið kúlunni svo aftur í kanilsykurinn og passið að sykurinn hylji kúluna.
- Setjið kúlurnar á ofnplöturnar, fletjið þær létt út með lófanum og bakið í 8 til 10 mínútur.
- Leyfið kökunum að kólna alveg, bræðið hvíta súkkulaðið og dýfið þeim ofan í.