Jæja elsku Blakarar, nú er ágústmánuður genginn í garð. Sem þýðir bara eitt: nýtt þema á blogginu! Það eru bestu fréttir sem ég hef heyrt í langan tíma því það þýðir að ég fæ að finna uppá alls kyns nýju kruðeríi til að baka.

Ég ákvað að þema ágústmánaðar yrðu alls kyns ber. En svo vorkenndi ég svo rabarbaranum sem vex eins og illgresi úti í garði að ég ákvað að leyfa honum að vera með í þemanu.

Við byrjum á mjög einfaldri uppskrift að einstaklega fljótlegri köku sem allir ættu að geta töfrað fram á fallegum sumardegi. Þessi bomba er einstaklega fersk en líka dísæt og dásamleg.


Berjabomba
Hráefni
Berjablanda
Mulningur
Leiðbeiningar
Berjablanda
  1. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið meðalstórt eldfast mót.
  2. Blandið öllum hráefnunum varlega saman og setjið í mótið.
Mulningur
  1. Blandið haframjöli, hveiti, púðursykri, sykri, kanil og salti vel saman.
  2. Brytjið smjörið út í og vinnið það saman við þurrefnin þar til blandan líkist grófu mjöli.
  3. Dreifið mulninginum yfir berjablönduna og bakið í um eina klukkustund. Kælið í um það bil korter áður en þið berið berjabombuna fram. Ekki sakar að bjóða upp á hana með vanilluís eða þeyttum rjóma.

Umsagnir

Umsagnir