Nei þetta eru ekki kökur úr kókosbollum – það kemur síðar. Þetta eru bollakökur með kókos. Ókei?

Þessar eru bara svo endalaust sumarlegar og fínar og ekki skemmir fyrir að þær eru helvíti ferskar á bragðið.


Kókosbollakökur með súraldinkremi
Hráefni
Krem
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 190°C. Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti saman í skál og setjið til hliðar.
  2. Blandið sykri og smjöri vel saman. Því næst er eggjunum bætt við, einu í einu.
  3. Skiptist á að blanda kókosmjólk og þurrefnablöndunni við smjörblönduna þar til allt er orðið blandað saman. Bætið þá kókosmjölinu út í og hrærið.
  4. Skiptið deiginu á milli möffinsforma og bakið í 15 til 20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en þær eru skreyttar með kreminu.
Krem
  1. Blandið flórsykri og smjöri vel saman.
  2. Bætið öllum hinum hráefnunum saman við og hrærið vel saman.
  3. Skreytið kökurnar með kreminu og drissið smá kókosmjöli ofan á. Þeir sem vilja fá meira súraldinbragð geta rifið smá börk og sett 3 til 4 matskeiðar út í kremið.

Umsagnir

Umsagnir