Það eru ekki allir sem meika sítrusávexti í mat og bakstri. Sem betur fer er ég ekki á þeim bitra stað því ég hreinlega elska gott sítrónukikk, jú eða læm, í kökurnar mínar. Svo ég tala nú ekki um gott greip! Því bitrara, því betra.

Þessar bollakökur eru ofureinfaldar og hrikalega sumarlegar. Uppskriftin er lítil og bara rétt í 12 litlar kökur en leikur einn er að stækka hana.

Svo sést það kannski ekki alveg nógu vel á myndunum en ég lék mér með gulan matarlit til að gera kremið röndótt. Þá notar maður kökusprautu og lætur þunna línu af matarlit á innanverða sprautuna áður en maður setur kremið í. Svo er kreminu skellt í sprautuna og þegar það sprautast út myndast fallegar rendur. Ég mæli með’essu!


Sítrónubollakökur
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 200°C. Blandið hveiti, sykri og lyftidufti vel saman.
  2. Blandið því næst smjöri og salti vel saman við og síðan egginu.
  3. Blandið mjólkinni og safa úr hálfri sítrónu vel saman við. Pssst! Hér er hægt að nota sítrónudropa!
  4. Skiptið blöndunni á milli möffinsforma og bakið í 15 til 20 mínútur.
Krem
  1. Blandið öllum hráefnum vel saman og skreytið kökurnar. Psst! Hér er hægt að nota sítrónudropa.

Umsagnir

Umsagnir