Auðvitað varð að vera marens líka. Ég meina marens með Snickers – verður það eitthvað betra?! Nei, held ekki.

Og til að gera þennan marens aðeins dýrðlegri en hann er í einfaldleika sínum þá bætti ég við súkkulaðirjóma til að færa hann upp á æðra svið í þessari tilveru.

Ég hef nú þegar farið yfir marensreglurnar með ykkur og því um að gera að dusta rykið af þeim og hlaða í þessa stórkostlegu sykur- og eggjadásemd. Þið sjáið ekki eftir því!


Marens með Snickers og súkkulaðirjóma
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 150°C og klæðið ofnplötur með bökunarpappír.
  2. Þeytið eggjahvíturnar í 1 til 2 mínútur eða þangað til þær freyða vel.
  3. Bætið sykrinum út í eggjahvíturnar á meðan þið hrærið, sirka einni matskeið í einu.
  4. Þeytið þessa blöndu í 15 til 20 mínútur eða þar til þið getið haldið skálinni á hvolfi og ekki dropi lekur niður. Bætið lyftiduftinu við og hrærið aðeins.
  5. Setjið sirka eina matskeið af blöndunni á ofnplöturnar með góðu millibili. Þið ættuð að fá 12 til 14 kökur.
  6. Bakið í 30 mínútur og leyfið kökunum að kólna í ofninum í um það bil tvo klukkutíma.
  7. Þeytið rjómann og bætið kakói og flórsykri saman við þegar þið eruð alveg að verða búin að þeyta rjómann.
  8. Skellið góðri slummu af rjómanum á marenskökurnar.
  9. Skerið Snickers-stykkin í litla bita og dreifið þeim ofan á rjómann.
  10. Bræðið súkkulaðið og drissið því yfir marensinn.
  11. Bræðið hnetusmjörið í um það bil 30 sekúndur í örbylgjuofni og drissið því yfir marensinn.

Umsagnir

Umsagnir