Það elska allir smákökurnar á Subway sem hafa eitthvað vit í kollinum og ég er að segja ykkur það – þessar smákökur eru alveg jafn yndislegar og Subway-smákökurnar, bara með dass af Oreo í þeim.
Leynihráefnið hér, til að gera kökurnar extra mjúkar og geggjaðar, er vanillubúðingur. Ég nota búðing í mjög margt í bakstri og hann gerir allt einfaldlega miklu betra.
Ég veit að jólin eru búin en það þýðir ekki að það sé ekki hægt að henda í eina smákökusort á tyllidögum. Þessi er einföld og fær mín allra bestu meðmæli.
Yndislegar Oreo-smákökur
|
|
Hráefni
- 2 1/4bolli Kornax-hveiti
- 1tsk matarsódi
- 225g mjúkt smjör
- 3/4bolli ljós púðursykur
- 1/4bolli sykur
- 1 pakki vanillubúðingur
- 2 stór Nesbú-egg
- 1tsk vanilludropar
- 6 Oreo-kex, grófsöxuð
- 100g hvítt súkkulaði, grófsaxað
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180°C og þekið ofnplötur með bökunarpappír.
- Blandið hveiti og matarsóda vel saman og setjið til hliðar.
- Blandið smjöri, púðursykri og sykri saman í annarri skál.
- Bætið búðingnum saman við og síðan eggjum og vanilludropum.
- Blandið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og blandið síðan Oreo og súkkulaði varlega saman við með sleif eða sleikju.
- Búið til litlar kúlur úr deiginu og bakið í 10-12 mínútur.