Ef þið þurfið að baka eina brúnku það sem eftir er af ævinni þá mæli ég með að það verði þessi. Ég veit hvað þið eruð að hugsa: Kartöflustrá og súkkulaði. Fer það saman? Stutta svarið er: Já! Aðeins lengra svar er: Þessi kaka á eftir að breyta lífi ykkar á mjög dramatískan hátt.
Við erum að tala um þykka, djúsí brúnku fyllta af Oreo-kexi. Ofan á er síðan hnausþykk og yndisleg karamellusósa og til að toppa þetta allt saman er hlaðið í glás af kartöflustráum á toppinn. Þessi blanda af söltu og sætu er algjört dúndur!
Oreo-brúnka með karamellusósu og kartöflustráum
|
|
Hráefni
Brúnka
- 120g smjör
- 200g 56% súkkulaði
- 1/2bolli sykur
- 1/2bolli púðursykur
- 1 1/4bolli Kornax-hveiti
- 3 Nesbú-egg
- 1msk kakó
- 20 Oreo-kex
Karamellusósa
- 1bolli sykur
- 1/2bolli rjómi
- 6msk smjör
- 1tsk sjávarsalt
Ofan á
- 2bollar kartöflustrá
Leiðbeiningar
Brúnka
- Hitið ofninn í 175°C og takið til kassalaga form, tuttugu sentímetra stórt. Þekið botninn með bökunarpappír og látið hann ná aðeins upp á hliðarnar svo auðveldara sé að fjarlægja kökuna úr forminu.
- Setjið smjör og súkkulaði í skál sem þolir örbylgjuofn og hitið í 45-55 sekúndur. Hrærið vel saman þar til allt súkkulaði er bráðið.
- Bætið sykur, púðursykri og hveiti saman við. Síðan eggjum, einu í einu, og vanilludropum. Síðast fer svo kakóið út í. Passið að hræra ekki of lengi - bara rétt svo þar til allt er búið að blandast saman.
- Hellið helmingnum af blöndunni í formið og raðið Oreo-kexkökum ofan á. Hellið síðan hinum helmingnum af deiginu ofan á. Bakið í 25-30 mínútur og leyfið kökunni að kólna.
Karamellusósa
- Hitið sykur á pönnu yfir meðalhita og hrærið stanslaust.
- Haldið áfram að hræra þar til sykurinn er búinn að bráðna og orðinn ljósbrúnn á litinn.
- Bætið þá smjörinu út í smátt og smátt. Þegar smjörið og sykurinn er búinn að blandast saman er rjómanum bætt hægt út í. Blandan mun sjóða. Leyfið henni að sjóða í 1 mínútu og takið hana síðan af hellunni.
- Bætið saltinu út í hrærið. Leyfið sósunni að kólna alveg áður en hún er sett á kökuna og stráið síðan kartöflustráum yfir.