Ég er rosalega hrifin af brúnkum, eða brownies eins og þær heita á ensku. Maður má alls ekki hræra deigið lengi og ég geri það alltaf í höndunum svo brúnkan verði vel blaut og djúsí í miðjunni. Ég bara stenst ekki svona þykkt og djúpt súkkulaðibragð sem fyllir kroppinn af unaði. Ég held að ég gæti ekki lifað í þessum heimi án súkkulaðis.
Þannig að ég varð að baka brúnku í poppmánuðinum bara til að sjá hvort þetta tvennt ætti einhverja samleið. Og jú, þetta tvennt á svo sannarlega samleið.
Í þessari uppskrift nota ég sæta mjólk (sweetened condensed milk) sem ég er ástfangin af. Fólk spyr mig oft hvar sé best að kaupa þessa dásemd en ég kaupi mína alltaf í asískum matvöruverslunum. En ég hef samt fundið mjólkina í Kosti og Hagkaupum sem er algjör snilld.
Ef þið eruð ekki nálægt verslunum sem selja mjólkina þá getið þið til dæmis notað karamellusósu í staðinn svo poppið klístrist vel við brúnkuna.
Ókei, nóg af skrifum – ég er komin með vatn í munninn!
|
|
- 115g brætt smjör
- 1bolli sykur
- 2 stór Nesbú-egg
- 1 1/2msk olía
- 2tsk vanilludropar
- 55g mjólkursúkkulaði
- 1/2bolli Kornax-hveiti
- 1/3bolli kakó
- 1/4tsk salt
- 1/4tsk matarsódi
- 2/3bolli dökkir súkkulaðibitar
- 3-4bollar Orville Redenbacher's Naturals-örbylgjupopp
- 3/4bolli sæt mjólk (sweetened condensed milk)
- 60g dökkt súkkulaði
- 1/3bolli karamellukurl
- Hitið ofninn í 180°C og klæðið 20 sentímetra, kassalaga form með smjörpappír þannig að hann nái upp á hliðunum.
- Blandið smjöri og sykri vel saman og hrærið því næst eggjunum saman við, einu í einu.
- Bræðið mjólkursúkkulaðið og blandið því saman við blönduna ásamt olíunni.
- Blandið þurrefnunum vel saman í annarri skál og blandið þeim við smjörblönduna.
- Hrærið súkkulaðibitunum varlega saman við með sleif eða sleikju.
- Skellið deiginu í formið og bakið í 25-30 mínútur. Leyfið kökunni að kólna.
- Poppið. Dreifið 1/3 af mjólkinni ofan á kökuna og stráið poppi síðan yfir. Endurtakið þar til þið eruð búin að klára bæði popp og mjólk.
- Bræðið súkkulaðið og drissið því yfir og skreytið kökuna því næst með karamellukurli.