Mér finnst fátt betra en góð brúnka. Og einn helsti kostur við brúnkur er hvað þær eru ofureinfaldar og hægt að henda í þær með litlum fyrirvara þegar að gesti ber að garði.
Ég baka allavega mjög oft brúnkur því það eru svo fá hráefni í þeim og ég á þau yfirleitt öll til heima þannig að ég þarf ekki einu sinni að fara út í búð. Svo er hægt að poppa brúnkur upp með alls konar og þá er um að gera að leyfa ímyndunaraflinu að leika lausum hala.
Kaffið er hetjan í þessari brúnku en ég poppaði hana upp með smá karamellusósu sem má alveg sleppa.
Þetta gerist ekki einfaldara!
Óviðjafnanlegar kaffi- og karamellubrúnkur
|
|
Hráefni
- 115 g smjör
- 230g dökkt súkkulaði(grófsaxað)
- 3/4bolli sykur
- 3 stór Nesbú-egg
- 1tsk vanilludropar
- 4msk kalt, sterkt kaffi
- 3/4bolli Kornax-hveiti
- 2msk kakó
- 1/4tsk salt
- 1/4bolli karamellusósa(má sleppa)
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið form sem er 20x20 cm stórt.
- Bræðið smjör og súkkulaði saman, í potti eða örbylgjuofni, og leyfið blöndunni að kólna.
- Blandið sykri saman við súkkulaðiblönduna og hrærið vel.
- Bætið síðan eggjunum saman við, einu í einu, og síðan vanilludropum og kaffinu.
- Blandið hveiti, kakói og salti varlega saman við þar til allt er blandað vel saman en passið að blanda ekki of mikið.
- Hellið deiginu í formið og breiðið úr því. Hellið karamellusósuna yfir ef þið notið hana.
- Bakið í 30-35 mínútur og leyfið kökunni að kólna aðeins áður en þið skerið hana í bita.