Það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum sem fylgist með þessari síðu að ég elska Pretzel. Við sjáum sönnunargögn:

Ómótstæðilegar ostafylltar Pretzel stangir.

Pretzel saltkringlur sem bráðna í munni.

Það er svo magnað hvernig svona einfalt deig, eins og Pretzel-deigið, getur boðið upp á endalausa möguleika í útfærslum. Hér er uppskrift að Pretzel beyglum sem eru svo dásamlegar að ég á varla til orð!

Þessar verðið þið að prófa!

Geggjaðar Pretzel beyglur
Leiðbeiningar
  1. Blandið vatni, sykri og salti saman í stórri skál og stráið þurrgeri yfir blönduna. Leyfið þessu að standa í um 5 mínútur eða þar til blandan byrjar að freyða.
  2. Blandið ólífuolíu og hveiti saman við gerblönduna og hrærið þokkalega vel saman. Hnoðið deigið í 1 til 2 mínútur í skálinni, skellið deiginu svo á borð sem er búið að dusta hveiti á og hnoðið í 2 til 3 mínútur í viðbót.
  3. Smyrjið smá bragðdaufri olíu í skálina og leyfið deiginu að liggja þar. Setjið hreint viskastykki yfir skálina og leyfið þessu að hefast í 55 til 60 mínútur á volgum stað.
  4. Stillið ofninn á 225°C og setjið smjörpappír á ofnplötu.
  5. Hellið vatni og matarsóda í stóran pott og látið koma upp suðu á hæsta hita. Á meðan vatnið er að hita sig búið þið til kúlur úr deiginu og búið til þokkalega stórt gat í þeim miðjum með fingri.
  6. Þegar vatnið er byrjað að bullsjóða skellið þið beyglunum ofan í það, bara 1 til 2 í einu, og látið þær liggja í vatns- og matarsódablöndunni í 30 sekúndur.
  7. Takið beyglurnar upp úr vatninu og raðið á ofnplötuna. Penslið beyglurnar með eggjarauðu-vatnsblöndunni. Stráið vel af sjávarsalti og/eða sesamfræjum yfir beyglurnar og bakið í 10 til 12 mínútur.

Umsagnir

Umsagnir