Þá er komið að síðasta jólaþættinum mínum á ÍNN í kvöld. Í honum fer ég yfir tvær einfaldar, heimagerðar jólagjafir til viðbótar sem lítið mál er að henda í svona korter í jól.

Í kvöld bý ég til krítarplatta úr viðarbút og breyti gamalli flík í hitapoka. Ekki missa af því!


Heimagerðar jólagjafir - partur III
Leiðbeiningar
Hitapoki
  1. Klippið hæfilega stóran bút úr flíkinni - ég notaði ermina til að búa til langan hitapoka yfir axlirnar.
  2. Saumið pokann saman en haldið einni hliðinni opinni.
  3. Fyllið pokann um 2/3 af hrísgrjónum. Saumið síðan opið saman.
  4. Til að nota pokann þarf bara að hita hann í örbylgjuofni í 30-60 sekúndur. Einfaldara gerist það varla!
Krítarplatti
  1. Málið bútinn með krítarmálningu og leyfið henni að þorna í um 4 klukkustundir.
  2. Farið aðra umferð með krítarmálningu og leyfið aftur að þorna í um 4 klukkustundir.
  3. Skrifið skemmtileg skilaboð með krít á plattann. Sniðugt í jólapakkann!

Umsagnir

Umsagnir