Eftirréttirnir bara verða ekki einfaldari en þessi karamellu- og bananabomba. Ég lofa! Og þeir verða heldur ekki mikið betri – það er að segja ef þú elskar karamellusósu, banana og rjóma.
Þessi eftirrétur er tilvalinn í matarboðið því það er svo ofureinfalt að búa hann til. Ég ákvað að setja hann saman í eftirréttaskálar en auðvitað er hægt að skella honum bara í eldfast mót eða kökuform og leyfa gestunum að skera sér sneiðar. Eitt er víst – þessi bananabomba hverfur fljótt.
Í eftirréttinum er karamellusósa en ég mæli með að nota Freyju-karamellusósuna úr þessari uppskrift, en sleppa hveitinu, því hún er einfaldlega engu lík. Sú allra besta karamellusósa sem ég fæ!
Njótið!
Súpereinföld karamellu- og bananabomba
|
|
Hráefni
- 125g hafrakex
- 50g bráðið smjör
- 1-2bollar karamellusósa
- 2 bananar
- þeyttur rjómi
- dökkt súkkulaði
Leiðbeiningar
- Myljið hafrakex með glasi eða í matvinnsluvél og blandið kexmylsnunni við smjörið.
- Þrýstið hafrakexblöndunni í botninn á 4-6 eftirréttaskálum eða í meðalstórt form.
- Hellið karamellusósunni yfir hafrakexbotninn.
- Skerið banana í sneiðar og raðið þeim ofan á karamellusósuna.
- Sprautið þeyttum rjóma yfir bananana og stráið súkkulaðispænum yfir.