Það er svo ofboðslega langt síðan ég bakaði kleinuhringi þannig að ég varð bara að henda í eina með unaðslegri piparmyntu.
Ég vona svo innilega að þeir sem eiga kleinuhringjamót nýti sér þessa uppskrift því hún er algjört æði! Svo keypti ég grænt súkkulaði til að drissa yfir, sem bragðast eins og hvítt súkkulaði. Mér fannst bara þurfa eitthvað grænt. Þetta er nú einu sinni piparmyntuþema!
Piparmyntukleinuhringir
|
|
Hráefni
- 1 1/2bolli Kornax-hveiti
- 2/3bolli sykur
- 2tsk lyftiduft
- 1/2tsk matarsódi
- 1/4tsk salt
- 1/2bolli kakó
- 1/2bolli mjög heitt, sterkt kaffi
- 30g súkkulaði(brætt)
- 2msk smjör(brætt)
- 2/3bolli mjólk
- 1 Nesbú-egg
- 1 1/4tsk piparmyntudropar
- 30g grænt súkkulaði(brætt)
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið kleinuhringjaformið.
- Blandið saman hveiti, sykri, lyftidufti, matarsóda og salti og setjið til hliðar.
- Blandið kakói og kaffi vel saman í skál og setjið til hliðar.
- Bræðið súkkulaði og leyfið því aðeins að kólna.
- Blandið smjöri, mjólk, eggi og piparmyntudropum saman í enn annarri skál.
- Búið til smá holu í hveitiblöndunni og hellið kakóblöndunni, mjólkurblöndunni og súkkulaðinu ofan í holunni. Blandið vel saman.
- Deilið deiginu í mótið og bakið í 15 mínútur.
- Leyfið hringjunum að kólna og drissið græna súkkulaðinu yfir.