Ágúst. Skrýtinn mánuður. Verður heitt, verður kalt? Rignir allan mánuðinn? Næ ég að nýta hengirúmið í garðinum áður en það fýkur út í veður og vind?

Þannig að ég var ekki viss hvað ég ætti að bjóða uppá í ágúst. En allt í einu fékk ég uppljómun. Piparmynta. Ég hef ekkert unnið með piparmyntu þó ég elski After Eight and piparmyntukex.

Þannig að elsku Blakarar, nú er komið að því. Heill mánuður með yndislegri piparmyntu og fyrsta uppskriftin er af djúsí brúnku, eða brownie, með æðislegu smjörkremi með hvítu súkkulaði. Brjálæðislega einföld uppskrift en heillar gesti alveg upp úr skónum. Ég lofa!


Piparmyntubrúnka með hvítsúkkulaði kremi
Leiðbeiningar
Brúnka
  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til 20x20 sentímetra form. Gott er að klæða það með smjörpappír og láta hann ná upp á hliðar svo auðvelt sér að ná kökunni upp úr forminu.
  2. Bræðið smjör og súkkulaði saman þar til allt er bráðið og vel blandað saman. Bætið sykri og kakói vel saman við.
  3. Hrærið hveiti og vanilludropum saman við og síðan eggjunum. Þar sem þetta er brúnka þá á bara að hræra saman þar til allt er blandað saman en ekki of mikið.
  4. Hellið helming af deiginu í formið. Raðið síðan Remi-kexinu ofan á og ferhyrningum af Pipp-súkkulaði.
  5. Hellið hinum helmingnum ofan þannig að deigið hylji kexið og súkkulaðið.
  6. Setjið inn í ofn og bakið í ca 40 mínútur. Leyfið kökunni að kólna áður en þið búið til krem.
Krem
  1. Þeytið smjörið í 2 mínútur og bætið síðan restinni af hráefnunum saman við. Blandið vel saman og skreytið kökuna.

Umsagnir

Umsagnir