Nú er komið að öðrum parti af heimagerðu jólagjöfunum en að þessu sinni bý ég til freyðandi og yndislegar baðbombur og dásamlegan líkamsskrúbb.
Þið getið séð nákvæmlega hvernig ég fer að þessu í þættinum Jóló á ÍNN í kvöld en hér koma uppskriftirnar svo þið getið keypt öll hráefnin og gert þetta með mér í beinni. Fáránlega einfaldar jólagjafir sem gleðja bæði augu og kropp.
Heimagerðar jólagjafir - partur II
|
|
Hráefni
Jólaskrúbbur
- 1bolli sykur
- 1/2bolli brædd kókosolía
- 5-6 nammistafir(candy cane)
- 4-5dropar piparmyntuolía (eða önnur ilmolía)(má sleppa)
Baðbombur
- 2bollar matarsódi
- 1/2bolli maíssterkja
- 1bolli sítrónusýra(fæst í Ámunni)
- 1/2bolli Epsom-salt(fæst í heilsubúðum eða apótekum)
- 5msk brædd kókosolía
- 2tsk vatn
- matarlitur(má sleppa)
- 5-6dropar piparmyntuolía (eða önnur ilmolía)(má sleppa)
Leiðbeiningar
Jólaskrúbbur
- Brjótið nammistafina í bita og setjið í blandara eða matvinnsluvél. Myljið þar til þeir minna á sand.
- Blandið síðan öllu vel saman og deilið á milli lítilla krukka. Mér finnst gott að geyma þetta í ísskáp en skrúbbinn má alveg geyma inni á baði. Ef þið gerið það mæli ég með að þið setjið skrúbbinn í plastílát svo ílátið brotni ekki inni á baði.
Baðbombur
- Blandið öllum þurrefnum vel saman í skál.
- Bætið því næst kókosolíu, vatni og ilmolíu saman við og blandið varlega saman. Blandan mun freyða smá en það er allt í lagi.
- Nú er gott að bæta við matarlit ef þið viljið nota hann. Það er líka hægt að nota glimmer, þurrkuð blómablöð eða hvað sem er til að skreyta bomburnar.
- Setjið blönduna í form. Ég notaði sílíkonform sem ég nota vanalega fyrir kökur. Það er hægt að leika sér með formin að vild.
- Leyfið þessu að bíða á þurrum stað í 24 klukkutíma áður en þið losið úr formunum. Geggjuð gjöf eða tilvalið til að nota í jólabaðið!