Það er lögmál hér á Blaka að það verður að gera ostakökur úr nánast hverju sem er. Eins er það eiginlega orðið lögmál að Rice Krispies er orðin mikil aðalpersóna hér á blogginu. Og ekki að ástæðulausu – það er hægt að leika sér með morgunkornið á svo marga vegu að maður fær bara ekki leið á því.

Og hvernig væri þá að sameina mínar þrjár ástir – Rice Krispies, Oreo með hnetusmjörsbragði og hnetusmjör? Þið vitið kannski svarið. Sú sameining var hreint út sagt glimrandi!

Í þessari uppskrift nota ég hnetusmjörssúkkulaðibita, Reese’s peanut butter chips, sem ég hef séð bæði í Hagkaupum og Krónunni. Þið getið auðvitað notað hvaða súkkulaði sem er en þetta hnetusmjörssúkkulaði fær mín allra bestu meðmæli. Bráðnar í munni alveg hreint.


Unaðslegir Rice Krispies- og Oreo-molar
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Takið til ílangt form, stærðin skiptir hér ekki öllu aldrei þessu vant. Þekið það með bökunarpappír og leyfið pappírnum að ná upp hliðarnar.
  2. Bræðið smjörið yfir meðalhita í stórum potti. Lækkið hitann og setjið 4 bolla af sykurpúðum út í. Hrærið stanslaust þar til sykurpúðar eru bráðnaðir.
  3. Takið pottinn af hellunni og verið snögg að hræra hnetusmjöri og salti við og síðan Rice Krispies, helmingnum af Oreo-kexinu og 1/2 bolla af sykurpúðum.
  4. Nú ætti blandan að vera mjög þykk og volg þannig að þið getið unnið hana með höndunum. Setjið blönduna í formið og mótið hana eins og þið viljið á meðan þið þrýstið henni saman í botninn.
  5. Bræðið hnetusmjörssúkkulaðið og hellið því yfir blönduna. Stráið restinni af Oreo-kexinu og sykurpúðum yfir það og njótið.

Umsagnir

Umsagnir