Ég hef aldrei verið sérstaklega hrifin af því að nota ávexti í bakstur – kannski út af því að maður er skaðbrenndur af endalausum frómas með dósaávöxtum sem manni voru gefnir við minnsta tilefni í æsku.
En ég er öll að koma til og þessi baka er gott dæmi um það. Hún er fersk, hún er sumarleg og hún er afar einföld – alveg eins og ég vil hafa það.
Mangóbaka með myntulaufum
|
|
Hráefni
- 250g hveiti
- 125g mjúkt smjör
- 1 egg
- 100 g sykur
- smá salt
Fylling
- 100g hvítt súkkulaði
- 1 þroskað mangó
- 1/2 sítróna
- 3 egg
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 190°C. Blandið hveiti, sykri og salti saman í skál.
- Skerið smjörið í litla bita og hnoðið því saman við hveitiblönduna. Því næst er egginu bætt saman við.
- Kælið blönduna þar til ofninn er orðinn heitur. Smyrjið form og setjið deigið í það. Stingið göt í deigið með gaffli og bakið í 10 til 15 mínútur.
Fylling
- Þeytið eggin í potti. Maukið mangóið í matvinnsluvél.
- Bætið mangómaukinu, hvíta súkkulaðinu og safa úr hálfri sítrónu saman við eggin og hitið yfir meðalháum hita.
- Leyfið blöndunni að malla í nokkrar mínútur og kælið hana síðan.
- Hellið kaldri blöndunni yfir kaldan botninn og skreytið með myntulaufum.