Ég geti ekki fyllilega lýst með orðum þeirri ringulreið sem skapaðist á mínum gamla vinnustað þegar ég mætti með þessa forlátu köku í vinnuna. Ég hef ekki séð svona hamslausa græðgi í augum fólks – nema þá kannski á tyllidögum í Kringlunni og Smáralind þegar boðið er upp á ókeypis pylsur.
Þessi kaka er nefnilega ekki af þessum heimi. Það er ekki bara hægt að fá sér einn bita. Ef ég mætti ráða myndi ég gúffa í mig allri kökunni en ég hef eiginlega ekki efni á að fara að endurnýja fataskápinn með fötum í yfirstærðum.
Til að gera langa sögu stutta: Þessi kaka er rugl góð!
Rauð flaueliskaka með Oreo og súkkulaði
|
|
Hráefni
- 1 1/4bolli hveiti
- 1msk kakó
- 1/2 tsk salt
- 3/4bolli sykur
- 3/4bolli olía
- 1 stórt egg
- rauður matarlitur
- 1/2tsk vanilludropar
- 1/2bolli súrmjólk
- 3/4tsk matarsódi
- 1tsk hvítt edik
- 225g mjúkur rjómaostur
- 1pakki Oreo-kex
- 1 - 1 1/2bolli súkkulaði
- súkkulaðidropar til að skreyta
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 175°C. Blandið saman hveiti, kakó og salt og setjið skálina til hliðar.
- Hrærið saman sykur og olíu. Bætið því næst eggjunum saman við og síðan matarlit og vanilludropum.
- Blandið þurrefnunum saman við sykurblönduna til skiptis við súrmjólkina.
- Hrærið matarsóda og ediki saman í lítilli skál. Bætið því næst við deigið og hrærið vel saman.
- Hellið blöndunni í form að eigin vali og bakið í um 20 mínútur. Leyfið kökunni að kólna.
- Myljið Oreo-kex í matvinnsluvél og blandið því og rjómaosti vel saman. Setjið blönduna yfir kökuna og passið að jafna vel úr henni.
- Bræðið súkkulaði og hellið yfir Oreo-blönduna. Skreytið með súkkulaðidropum.