Það er langt síðan ég hef boðið upp á bónusuppskrift en ég bara stóðst ekki mátið núna enda korter í jól.
Þetta eru mömmukökur og er uppskriftin að sjálfsögðu frá móður minni sem klikkar aldrei í bakstrinum!
Ég bakaði þessar kökur fyrst sjálf í fyrra og þurfti ég að baka þær aftur og aftur því þær kláruðust jafnóðum. Á einhvern undarlegan hátt náði heimilisfólkið að þefa upp mömmukökudunkana og spændu þær í sig. Sem er bara yndislegt því ég elska þegar kökurnar mínar hitta beint í mark.
Þannig að ég bakaði þessar aftur núna og fyrsti dunkur er orðinn ansi hreint tómlegur. Því vil ég skora á þá sem eiga eftir að baka fyrir jólin að baka þessar.
Þær eru bara dásamlegar í einu orði sagt!
Mömmukökurnar hennar mömmu
|
|
Hráefni
Krem
- 100g mjúkt smjör
- 5-6bollar flórsykur
- 2tsk vanilludropar
- 7-8msk mjólk
Leiðbeiningar
Kökur
- Hitið smjör, sykur og síróp saman í potti yfir meðalháum hita þar til allt er bráðið og búið að blandast saman. Hér þarf ekki að hræra mikið í blöndunni. Kælið.
- Hrærið egg saman við smjörblönduna og síðan restina af hráefnunum.
- Hnoðið deigið vel saman og kælið það í ísskáp yfir nótt en það sleppur að kæla það í 3 klukkutíma.
- Hitið ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur.
- Fletjið deigið út en mér finnst kökurnar betri ef þær eru í þynnra lagi.
- Skerið út form eða með glasi og bakið þar til kökurnar hafa brúnast, 7-9 mínútur. Leyfið kökunum að kólna alveg áður en kremið er sett á.
Krem
- Hrærið smjör og flórsykur vel saman.
- Bætið vanilludropum og mjólk saman þar til kremið er orðið hæfilega þykkt.
- Smyrjið þessu á helminginn af kökunum og notið hinn helminginn til að loka þeim þannig að úr verði eins konar samloka.