Það hlaut að koma að því að maður myndi hlaða í einn marens – enda frekar glatað að vera með bökunarblogg og ekki bjóða upp á yndislegt rjómasull og með’í.
Þessi marens er svo sem ekki tilefni til að stöðva prentvélarnar og búa til nýja forsíðu á bökunartíðindunum en góður er hann! Munið bara að hræra eggjahvíturnar og sykurinn nógu lengi svo þið fáið alvöru, djúsí marens. Og ekki spara lyftiduftið – þetta lyftir sér ekki sjálft!
M(ar)m(ara)m(arens)
|
|
Hráefni
- 6 Nesbú-eggjahvítur
- 2bollar sykur
- 2-3tsk lyftiduft
- 1/4tsk salt
- 3msk kakó
- 170g bráðið súkkulaði
- 1/2líter rjómi
- 2msk flórsykur
- 1 vanillustöng
- súkkulaði og karamellukurl til að skreyta
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180°C. Byrjið á að bræða súkkulaðið og leyfa því að kólna.
- Þeytið eggjahvítur og salt saman þar til blandan byrjar að freyða. Blandið þá sykri varlega saman við og þeytið í 15 til 20 mínútur.
- Blandið kakói og lyftidufti saman við. Blandið síðan súkkulaðinu saman við með sleif og ekki blanda of vel - við viljum marmaraáferð á marensinn.
- Þessi uppskrift dugir í einn stóran botn (eina ofnskúffu) eða tvo minni. Ég setti minn á ofnskúffu. Svo bara inní ofn og lækka hitann á honum í 150°C. Bakið í klukkutíma til einn og hálfan tíma. Opnið síðan ofninn og leyfið marensinum að kólna inni í ofninum.
- Þeytið rjóma með flórsykri og fræjum úr einni vanillustöng. Skellið á marensinn og skreytið með því sem þið viljið. Ég notaði súkkulaði og karamellukurl.
- Marensinn er bestur ef hann fær að liggja í rjómanum yfir nótt.