Það er alveg makalaust hvað það hellist yfir mig mikil bakstursþrá þegar að haustið mætir á svæðið í öllu sínu veldi.
Það er líka mjög fyndið hvað bragðlaukarnir og maginn kalla á allt aðra hluti þegar að byrjað er að kólna, vindurinn gnauðar fyrir utan og maður finnur að snjórinn nálgast á ógnarhraða. Enginn sumarmatur, takk! Ó, nei – bara djúsí haust- og vetrargúmmulaði sem yljar manni að innan.
Ég ætla að byrja þetta haust á einni af mínum uppáhaldsuppskriftum sem minnir óneitanlega mikið á jólin. Við erum að tala um ljósku. Já, ljósku! Sem sagt ekki brúnku, eða brownie, heldur ljósari týpuna sem ávallt er kölluð ljóska. Þessi ljóska minnir á eina, stóra piparköku og er toppuð með hvítu súkkulaði og piparkökumulningi.
Hljómar þetta ekki eins og akkúrat eitthvað sem þú þarft á köldum haustkvöldum?
Það skemmir ekki fyrir að hér er um að ræða ofureinfalda uppskrift með nokkrum hráefnum sem ég hræri saman í höndunum, þannig að krakkar niður í leikskóla geta bakað þessa snilld!
Góða skemmtun og hafið það huggulegt!
|
|
- 115g brætt smjör
- 2 1/2dl púðursykur
- 1/3dl síróp
- 2 stór egg
- 1tsk sjávarsalt
- 1tsk vanilludropar
- 2 1/2dl hveiti
- 3/4tsk lyftiduft
- 1 tsk kanill
- 1tsk engifer
- 1/2tsk negull
- 1/2dl rjómi
- 100g hvítt súkkulaði
- nokkrar piparkökur(muldar)
- Hitið ofninn í 180°C og takið til kassalaga form, sirka 20x20 cm. Smyrjið það með olíu eða smjöri og setjið til hliðar.
- Takið ykkur skál í hönd og blandið smjöri, púðursykri og sírópi vel saman. Bætið eggjunum við og hrærið í 2-3 mínútur þar til blandan er orðin léttari. Blandið því næst salti og vanilludropum saman við.
- Blandið restinni af hráefnunum saman við en blandið bara þar til allt er komið saman - alls ekki hræra of lengi því þá getur kakan orðið seig.
- Inn í ofn með þessa dúllu og bakið í 20-23 mínútur. Leyfið henni að kólna áður en hún er skreytt.
- Hitið rjóma í 45 sekúndur og upp í 1 mínútu í örbylgjuofni. Brjótið súkkulaðið í bita og skellið saman við rjómann. Látið standa í um 5 mínútur. Hrærið vel saman þar til allt súkkulaðið er bráðnað. Hellið yfir kökuna og stráið muldum piparkökum yfir.