Lakkrístoppar eru órjúfanlegur hluti af jólahátíðinni fyrir marga. Ég hef ekki verið í þeim hópi fyrr en núna síðustu jól, eiginlega eingöngu út af því að sjö ára dóttir mín elskar marengs meira en lífið sjálft.
Þannig að ég ákvað að henda í nokkra lakkrístoppa um daginn. Og þegar ég segi nokkra þá meina ég í raun mjög marga, þar sem ég ákvað að hafa uppskriftina stóra og veglega til að eiga nóg.
Þetta plan mitt gekk ekki alveg eins og í sögu þar sem það fór ansi mikið af þessari stóru uppskrift minni strax á fyrsta degi. Og ég skil það vel, því þessir lakkrístoppar eru ómótstæðilegir, þó ég segi sjálf frá.
Ég ákvað að nota þetta nýja piparlakkrískurl frá Nóa Siríus í þessa toppa en ekkert súkkulaði. Í staðinn fyrir súkkulaði notaði ég smá lakkrísduft til að auka piparbragðið aðeins. Og það klikkaði aldeilis ekki!
Þannig að ég kynni piparfylltu toppana mína til sögunnar – eitthvað sem ég þarf að baka einu sinni, jafnvel tvisvar aftur fyrir jól svo ég eigi nú nóg til að gúffa í mig yfir hátíðisdagana. Get ekki beðið!
Gleðileg smákökujól!
Smellið svo hér ef þið viljið smá marengsfræðslu a la Blaka!
|
|
- 6 Nesbú-eggjahvítur(við stofuhita)
- 1bolli sykur
- 3/4bolli púðursykur
- 1 1/2tsk lyftiduft
- 300g piparlakkrískurl
- 4-5 msk lakkrísduft frá Johan Bülow(eða annað lakkrísduft)
- Hitið ofninn í 150°C og klæðið ofnplötur með smjörpappír.
- Þeytið eggjahvíturnar þar til þær freyða. Bætið síðan sykri og púðursykri saman við í einni bunu og stífþeytið í 10-15 mínútur.
- Blandið lyftidufti, kurli og lakkrísdufti vel saman við blönduna með sleif eða sleikju.
- Mér finnst gott að skella blöndunni í sprautupoka og sprauta litla toppa á ofnplötuna. Þeir geta verið nokkuð þétt saman en þeir breiða aðeins úr sér. Þá er einnig hægt að setja þá á plötuna með skeið.
- Bakið í 18-20 mínútur og leyfið kökunum að kólna í um 20 mínútur áður en þær eru teknar af plötunni. Endurtakið þar til allir toppar eru bakaðir.