Þegar ég var að undirbúa Bökunarmaraþon Blaka þá ætlaði ég að enda maraþonið á köku til heiðurs Krafti og þeirra frábæra starfi. Þá hélt ég að það myndu ekkert margir mæta í maraþonið og ég hefði nægan tíma til að dúlla mér í kökuskreytingum. Það var ekki raunin og því fæddist Kraft-kakan ekki í maraþoninu því ég vildi ekki bara henda einhverju saman í flýti fyrir félagið.
En þegar kökublað Vikunnar hafði samband og vildi birta uppskriftir úr maraþoninu ákvað ég að föndra Kraft-kökuna. Nostra við hana með alls kyns smjörkremi og skrauti og nota appelsínugula lit félagsins út í ystu æsar.
Útkoman er æðisleg appelsínukaka með smjörkremi með hvítu súkkulaði og öðru súkkulaðismjörkremi. Þessi er algjört æði!
Kyngimögnuð Kraft-kaka
|
|
Hráefni
Kaka
- 250g mjúkt smjör frá MS
- 600g sykur
- 6 Nesbú-egg
- 540g Kornax-hveiti
- 2tsk lyftiduft frá Kötlu
- 240ml súrmjólk frá MS
- 200ml nýkreistur appelsínusafi
- börkur af 3-4 appelsínum
Krem
- 400g mjúkt smjör frá MS
- 800g flórsykur frá Kötlu
- 200g hvítt Lindu-súkkulaði
- 4msk kakó frá Kötlu
- 3tsk vanilludropar frá Kötlu
Leiðbeiningar
Kaka
- Hitið ofninn í 170°C og smyrjið kökuform. Til að fá 3 botna er best að nota hringlaga kökuform sem eru ca 16-18 cm.
- Hrærið smjöri og sykri vel saman. Blandið eggjunum saman við einu í einu.
- Blandið súrmjólk, appelsínusafa og berki saman við og síðan hveiti og lyftidufti.
- Deilið deiginu í formin og bakið í 35-40 mínútur.
- Leyfið kökunum að kólna alveg áður en þær eru skreyttar.
Krem
- Þeytið smjörið í 2-3 mínútur og bætið flórsykrinum saman við.
- Bræðið hvítt súkkulaði og leyfið því aðeins að kólna. Hrærið það síðan saman við sem og vanilludropunum.
- Ef kremið er of þykkt má blanda smá mjólk saman við.
- Takið helming af kreminu frá. Blandið kakói saman við hinn helminginn.
- Notið hvíta kremið á milli kökubotnana og þekið svo kökuna með kakókreminu.
- Skreytið síðan að vild.