Ertu komin/n með leið á hefðbundnum kanilsnúðum? Þá vil ég mæla með þessum litlu dúllum – þó ég fái aldrei nóg af mínum langbestu kanilsnúðum.

Þessir snúðar, maður minn! Þvílíkur unaður! Epli + kanill + karamella – þetta getur ekki klikkað!

Svo er þetta svo ofureinfalt. Tilvalið sætabrauð með kaffinu á tyllidögum, eða bara á hverjum degi. Allt er gott í hófi!


Himneskir epla- og karamellusnúðar
Hráefni
Deig
Fylling
Leiðbeiningar
Deig
  1. Blandið hveiti, sykur, þurrgeri og salti saman í skál.
  2. Blandið mjólk og smjöri saman í annarri skál.
  3. Búið til holu í þurrefnablönduna og hellið mjólkurblöndu og eggi ofan í holuna.
  4. Hnoðið vel saman, setjið plastfilmu yfir skálina og leyfið deiginu að hefast við stofuhita í um 30 mínútur.
Fylling
  1. Bræðið smjör á pönnu yfir meðalhita.
  2. Bætið eplum, púðursykri og kanil saman við smjörið og eldið í 5-7 mínútur, eða þar til eplin eru mjúk.
  3. Fletjið deigið út og penslið það með þykkri karamellusósu.
  4. Dreifið eplablöndunni yfir karamellusósuna en reynið að skilja mestallan vökvann eftir í pönnunni.
  5. Rúllið deiginu upp og skerið í bita.
  6. Raðið snúðunum á pönnu eða í eldfast mót og leyfið þeim að hefast aftur undir viskastykki á meðan þið hitið ofninn í 190°C.
  7. Bakið snúðana í um 20 mínútur.

Umsagnir

Umsagnir