Þetta er án efa ein einfaldasta uppskriftin í bókinni minni, Minn sykursæti lífsstíll, og fullkomin fyrir Bounty-elskendur.

Bara þrjú hráefni! Já, ég sagði ÞRJÚ HRÁEFNI.

Þetta er jú einu sinni uppskrift að Bounty sem þú getur barasta búið til heima! Hve fullkomið?

Í þessa uppskrift nota ég sæta dósamjólk, sweetened condensed milk, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér eins og lesendur bloggsins hafa eflaust tekið eftir.

Það má að sjálfsögðu móta Bounty-ið að vild, til dæmis í litlar kúlur eða sæta kodda.

Útlitið skiptir ekki öllu – en bragðið gerir það!

Mynd: Sunna Gautadóttir


Heimagert Bounty
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Blandið kókosmjöli og mjólkinni vel saman. Mótið síðan litlar, nú eða stórar) lengjur úr blöndunni og raðið lengjunum á plötu eða disk sem búið er að klæða með smjörpappír.
  2. Setjið plötuna eða diskinn inn í ísskáp og kælið í um klukkustund.
  3. Bræðið súkkulaðið en þið getið auðvitað notað mjólkursúkkulaði ef þið viljið. Hér finnst mér best að dýfa toppinum á Bounty-inu í súkkulaðið, setja lengjuna aftur á smjörpappír og leyfa toppinum að storkna. Síðan að dýfa botninum í súkkulaði og leyfa súkkulaðinu aftur að storkna. Þið getið auðvitað súkkulaðihúðað Bounty-ið eins og þið viljið. Skiptir svo sem litlu máli hvernig þetta lítur út því bragðið er aðalmálið. Og bragðið er gott!

Umsagnir

Umsagnir

This entry was posted in Konfekt.