Smákökuævintýrin í eldhúsinu mínu halda áfram.
Að þessu sinni býð ég upp á algjörlega ómótstæðilegar súkkulaðibitakökur með leynihráefni sem gerir þær gómsætari en góðu hófi gegnir.
Þetta leynihráefni hef ég notað margoft, til dæmis í snúða, en það er gamli, góði Royal-búðingurinn.
Búðingurinn, sem sagt duftið sem notað er til að blanda búðinginn, gerir kökurnar dúnmjúkar í miðjunni og kantana stökka og góða. Þessar kökur komast eiginlega næst því að vera eins og smákökurnar á Subway, þó ég segi sjálf frá.
Þessar kökur hurfu á skotstundu og þarf ég greinilega að vera dugleg að baka þessar á aðventunni þegar ég er í stuði.
Er maður ekki annars alltaf í stuði fyrir smákökur?
Gómsætar súkkulaðibitakökur með leynihráefni
|
|
Hráefni
- 220g mjúkt smjör
- 3/4 bolli púðursykur
- 1/4bolli sykur
- 1pakki Royal-vanillubúðingur
- 2 egg
- 1tsk vanilludropar
- 2 1/3bolli hveiti
- 1tsk matarsódi
- 150g hvítt súkkulaði(grófsaxað)
- 150g dökkt súkkulaði(grófsaxað)
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 190°C og klæðið ofnplötur með smjörpappír.
- Byrjið á að þeyta smjör, púðursykur og sykur vel saman, eða í um 5 mínútur. Bætið því næst búðingsduftinu, eggjunum og vanilludropum saman við og hrærið vel.
- Bætið hveiti og matarsóda saman við og hrærið þar til allt er blandað saman - hér er ekki gott að hræra of lengi.
- Bætið súkkulaðinu út í og hrærið saman við deigið með sleif eða sleikju. Búið til litlar (eða stórar) kúlur úr deiginu, raðið á ofnplötur og fletjið út með lófanum. Bakið í 8-10 mínútur og takið kökurnar út þó þær virðist vera hráar - þær eru það ekki.