Smákökuævintýrin í eldhúsinu mínu halda áfram.

Að þessu sinni býð ég upp á algjörlega ómótstæðilegar súkkulaðibitakökur með leynihráefni sem gerir þær gómsætari en góðu hófi gegnir.

Þetta leynihráefni hef ég notað margoft, til dæmis í snúða, en það er gamli, góði Royal-búðingurinn.

Búðingurinn, sem sagt duftið sem notað er til að blanda búðinginn, gerir kökurnar dúnmjúkar í miðjunni og kantana stökka og góða. Þessar kökur komast eiginlega næst því að vera eins og smákökurnar á Subway, þó ég segi sjálf frá.

Þessar kökur hurfu á skotstundu og þarf ég greinilega að vera dugleg að baka þessar á aðventunni þegar ég er í stuði.

Er maður ekki annars alltaf í stuði fyrir smákökur?


Gómsætar súkkulaðibitakökur með leynihráefni
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Hitið ofninn í 190°C og klæðið ofnplötur með smjörpappír.
  2. Byrjið á að þeyta smjör, púðursykur og sykur vel saman, eða í um 5 mínútur. Bætið því næst búðingsduftinu, eggjunum og vanilludropum saman við og hrærið vel.
  3. Bætið hveiti og matarsóda saman við og hrærið þar til allt er blandað saman - hér er ekki gott að hræra of lengi.
  4. Bætið súkkulaðinu út í og hrærið saman við deigið með sleif eða sleikju. Búið til litlar (eða stórar) kúlur úr deiginu, raðið á ofnplötur og fletjið út með lófanum. Bakið í 8-10 mínútur og takið kökurnar út þó þær virðist vera hráar - þær eru það ekki.

Umsagnir

Umsagnir