Hvað er betra en að gera pönnukökur um helgar? Fátt!
Hér kemur enn ein uppskriftin úr bókinni minni, Minn sykursæti lífsstíll, en mér telst til að uppskriftirnar í þeirri bók telji hátt í sjötuíu.
Það var sem fyrr hún yndislega Sunna Gautadóttir sem tók myndina, eins og allar myndir í bókinni, og verð ég henni ævinlega þakklát fyrir.
Njótið helgarinnar!
Ekta amerískar pönnukökur
|
|
Hráefni
- 2bollar hveiti
- 1tsk lyftiduft
- 1/2tsk matarsódi
- 1/4bolli sykur
- 1tsk salt
- 2bollar súrmjólk
- 2stór Nesbú-egg
- 55g brætt smjör
- 1/2bolli súkkulaðibitar(má sleppa)
Leiðbeiningar
- Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda, sykri og salti saman í skál og búið til holu í miðjunni.
- Blandið súrmjólk, eggjum og smjöri saman í skál og hellið í holuna. Gott er að þeyta deigið í leiðinni þar til það er slétt og fellt – algjörlega kekkjalaust.
- Blandið súkkulaðibitum varlega saman við með sleif eða sleikju.
- Hitið pönnu yfir meðalhita og spreyið bökunarspreyi á hana. Hellið smá deigi á pönnuna og steikið í 2–3 mínútur á hvorri hlið. Það er algjörlega sturlað að bera þessar fram volgar með smjöri og hlynsírópi.