Hér er á ferð ein af mínum farsælustu tilraunum í eldhúsinu en þessi eftirréttur er kominn á topp 3 listann minn yfir bestu eftirrétti Blaka.
Ég náttúrulega elska Oreo út af lífinu og er nóg af því í þessum eftirrétt og meira að segja tvær týpur af þessu yndislega kexi.
Svo er þetta svo ofureinfalt. Stjarnan hér er búðingur nema það eru engin egg í honum þannig að það er nánast ómögulegt að klúðra honum nema að maður sé með einbeittan brotavilja.
Uppskriftin dugir fyrir fjóra ef þið notið frekar lítil eftirréttarglös en trúiði mér – splæsið bara í tvö stór. Þetta er það gott!
Eftirréttur með tvöföldum skammti af Oreo
|
|
Hráefni
Botn
- 8 Golden Oreo-kex, fínsaxað
- 2msk bráðið
Búðingur
- 50g hvítt súkkulaði
- 1 1/4bolli nýmjólk
- 1/4bolli sykur
- 1msk maizena
- 1/2tsk vanilludropar
- 1/2msk smjör
- 5 Oreo-kex
Ofan á
Leiðbeiningar
Botn
- Blandið Oreo-kexinu og smjörinu saman og deilið því á milli 4 eftirréttaglasa. Þrýstið blöndunni í botninn og setjið til hliðar.
Búðingur
- Bræðið súkkulaðið í potti yfir lágum hita. Hrærið stanslaust svo það brenni ekki við.
- Hrærið mjólk, sykri og maizena saman við og hækkið hitann aðeins. Leyfið blöndunni að sjóða og hrærið stöku sinnum í henni þangað til hún þykknar, eða í um 10 mínútur.
- Takið pottinn af hellunni og blandið smjöri og vanilludropum saman við. Leyfið blöndunni að kólna aðeins og blandið svo Oreo-kexinu varlega saman við.
- Deilið búðingnum á milli glasanna og setjið þau inn í ísskáp í klukkustund.
Ofan á
- Þeytið rjóma og sprautið honum ofan á búðinginn. Drissið kexmylsnu yfir.