Þetta eru ekki aðeins bestu trufflur í heimi heldur er þessi uppskrift svo auðveld að hver sem er getur slegið um sig í næsta saumaklúbbi eða matarboði og haft þessar á boðstólnum með kaffinu. En munið bara að þessar eru langbestar sama dag og þær eru búnar til og þær geymast ekki lengi í ísskáp.
Ég notaði minn eigin heimagerða lakkrís í þessar en auðvitað er lítið mál að kaupa lakkrís út úr búð – við Íslendingar eigum svo sannarlega nóg af honum!
Þessar trufflur gerðu svo mikla stormandi lukku á mínu heimili að ég held að ég verði að hlaða í þær aftur bráðum. Sem ég hata náttúrulega. Ég veit ekkert verra en að gúffa í mig sætindum #kaldhæðni.
Ég mana ykkur í að prófa þessar!
Bestu trufflur í heimi
|
|
Hráefni
- 150g dökkt súkkulaði
- 90g rjómi
- 1 1/2msk smjör(skorið í litla bita)
- 50g lakkrísbitar
- 5-9msk lakkrísduft frá Johan Bülow
Leiðbeiningar
- Saxið súkkulaðið og setjið það í skál sem þolir háan hita.
- Hitið rjómann og smjör í potti eða í örbylgjuofni þar til blandan byrjar að sjóða.
- Hellið rjómablöndunni yfir súkkulaðið og leyfið því að standa í nokkrar mínútur á meðan súkkulaðið bráðnar.
- Hrærið allt vel saman, setjið plastfilmu yfir súkkulaðiblönduna og geymið í ísskáp í að minnsta kosti fimm klukkustundir, eða yfir nóttu.
- Gerið litlar kúlur úr súkkulaðiblöndunni og stingið litlum lakkrísbita í miðjuna.
- Rúllið kúlunum upp úr lakkrísduftinu og þá eru trufflurnar tilbúnar.