Ókei, það kannast flestir við sjónvarpsköku. Mjög svo basic kaka sem finna má á mörgum kaffistofum út um hvippinn og hvappinn.
Þar sem ég elska góða sjónvarpsköku þá ákvað ég að leika mér aðeins með uppskriftina í anda þema mánaðarins sem er jú Guðs gjöfin hvítt súkkulaði.
Og ég er að segja ykkur það krakkar – þið hafið aldrei smakkað sjónvarpsköku eins og þessa. Biti af henni er eins og biti af himnaríki.
Súper sjónvarpskaka
|
|
Hráefni
Kaka
- 1bolli sykur
- 170g mjúkt smjör
- 2 egg
- 3/4bolli sýrður rjómi
- 1/4bolli rjómi
- 2tsk vanilludropar
- 1 1/2bolli Kornax-hveiti
- 1tsk matarsódi
- 1tsk lyftiduft
- 1/4tsk salt
- 1bolli kókosflygsur
Mulningur
- 1/2bolli púðursykur
- 1/4bolli sykur
- 1bolli Kornax-hveiti
- 5msk smjör
- 1/2bolli kókosflygsur
- 1/4bolli hvítir súkkulaðidropar
Leiðbeiningar
Kaka
- Hitið ofninn í 180° gerið form tilbúið. Ég notaði tvö mini-formkökuform sem ég keypti í Tiger um daginn - ég mæli með þeim!
- Blandið sykri og smjöri vel saman. Bætið eggjunum við, eitt í einu.
- Blandið því næst vanilludropum, sýrðum rjóma og rjóma saman við.
- Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti saman við og blandið vel. Bætið kókosflygsunum út í og hrærið varlega með sleif eða sleikju. Setjið blönduna í form og búið til mulning.
Mulningur
- Blandið púðursykri, sykri og hveiti saman í skál. Bræðið smjör og hellið því yfir. Blandið því næst kókosflygsunum saman við.
- Setjið mulninginn yfir deigið og drissið því næst hvítum súkkulaðidropum yfir. Bakið í 45 til 55 mínútur - allt eftir stærð formsins. Psst! Hér er líka hægt að búa til mjög skemmtileg möffins - þá er bökunartími sirka 25 til 30 mínútur.