Ég elska Freyju-karamellur. Og ég elska epli. Því ákvað ég að sameina þessar tvær ástir mínar í einni svakalegustu múffu sem ég hef á ævi minni bakað!
Þessi uppskrift er svo skotheld að það hálfa væri nóg og þetta lostæti hefur það allt. Dúnmjúka rjómakaramelluna, ljúffeng eplin og stökkan mulning á toppinum sem er himnaríki líkastur.
Þessar múffur verðið þið að baka og smakka til að trúa því að ein múffa getur virkilega bjargað deginum þínum.
Rosalegar múffur með Freyju-karamellum og eplum
|
|
Hráefni
Mulningur
- 1/2bolli púðursykur
- 5msk Kornax-hveiti
- 1/4 bolli haframjöl
- 1tsk kanill
- smá salt
- 3msk bráðið smjör
Múffur
- 2bollar Kornax-hveiti
- 3/4bolli sykur
- 2tsk lyftiduft
- 2tsk kanill
- 1/2tsk salt
- 1 stórt Nesbú-egg
- 1bolli léttmjólk
- 4msk bráðið smjör
- 2tsk vanilludropar
- 1 meðalstórt epli(takið hýðið af og skerið í litla bita)
- 12 Freyju karamellur(hver skorin í 4 bita)
Leiðbeiningar
Mulningur
- Blandið púðursykri, hveiti, haframjöli, kanil og salti saman í skál.
- Bætið smjörinu saman við og blandið þar til þetta líkist mulningi. Setjið til hliðar á meðan þið búið til múffurnar.
Múffur
- Hitið ofninn í 185°C og takið til 12 möffinsform.
- Blandið hveiti, sykri, lyftidufti, kanil og salti saman í skál.
- Blandið eggi, mjólk, smjöri og vanilludropum saman í annarri skál.
- Bætið eggjablöndunni við þurrefnin og blandið saman bara rétt svo þar til allt er blandað saman - ekki hræra of lengi.
- Blandið eplabitum og karamellum saman við með sleif eða sleikju.
- Deilið deiginu á milli möffinsformanna og stráið síðan mulningi yfir. Bakið í 20-22 mínútur og leyfið múffunum aðeins að kólna áður en þið gúffið í ykkur.