Bolludagurinn er á mánudag og eflaust margir sem hyggja á bakstur á morgun til að undirbúa sig fyrir þann æðislega dag.

Ég er ofboðslega lítið fyrir gerbollur, eiginlega bara ekki neitt, en vatnsdeigsbollur get ég borðað eintómar í tonnavís! Það tók mig nokkrar tilraunir að finna út hvernig ég ætti að gera hina fullkomnu vatnsdeigsbollu án þess að hún yrði flöt og asnaleg en fyrir nokkrum árum tókst þetta loksins hjá mér og hef ég bara orðið betri og betri í vatnsdeigsbollugerð með árunum.

En þetta er samt ekkert mál ef þið bara fylgið þessum leiðbeiningum mínum. Í alvörunni! Farið nákvæmlega eftir uppskriftinni, og ég meina nákvæmlega og þá verða bollurnar ykkar stökkar að utan og mjúkar að innan, falla ekki og svo yfirgengilega gómsætar.

Ég set með uppskrift að tveimur fyllingum því sú þriðja er svo hefðbundin – sulta, rjómi og súkkulaði.

Ég held frekar stórt heimili og var með fólk í kaffi þannig að uppskriftin er í stærra lagi. Ef þið þurfið ekkert ofboðslega margar bollur þá er nóg að gera helming af þessari uppskrift en það er sirka ein og hálf ofnplata. Njótið!


Hin fullkomna vatnsdeigsbolla
Hráefni
Fullkomnar vatnsdeigsbollur
Marens
Hvítsúkkulaðirjómi
Karamelluglassúr
Súkkulaðirjómi
Kaffiglassúr
Leiðbeiningar
Fullkomnar vatnsdeigsbollur
  1. Hitið ofninn í 215°C og setjið bökunarpappír á ofnskúffur.
  2. Setjið vatn og smjör í pott og bræðið saman yfir meðalhita. Hér þarf lítið að hræra en á meðan smjörið bráðnar hræri ég kannski 2-3. Hafið hveitið tilbúið.
  3. Um leið og smjörið er bráðnað takið þið pottinn af hellunni og hellið öllu hveitinu saman við. Hrærið mjög rösklega í blöndunni þar til hún er hætt að festast við hliðar pottsins og myndar kúlu.
  4. Setjið deigið í skál og leyfið því að kólna aðeins.
  5. Takið til eggin og hér kemur mikilvægasta skrefið af þeim öllum. Hrærið eitt egg í einu saman við deigið og hrærið alveg þar til það er vel blandað saman við deigið. Þið megið ekki klikka á þessu því þá falla bollurnar og verða glataðar. Ég get ekki ítrekað þetta nóg - hrærið bara eitt egg vel saman við deigið í einu.
  6. Þegar öll eggin eru búin að blandast saman við deigið á það að vera mjög fallega gult, glansandi og eilítið stíft. Það á að vera hægt að hella því samt en bunan á þá að taka langan tíma að hellast niður ef þið skiljið hvert ég er að fara. Sem sagt í stífari kantinum en ekkert marens stífelsi.
  7. Ég nota sprautupoka til að sprauta bollunum á ofnskúffurnar með góðu millibili en auðvitað er hægt að nota bara skeið.
  8. Bollurnar fara svo inn í ofn og þurfa 25-30 mínútur til að bakast. Og hér kemur annað mjög mikilvægt - alls ekki opna ofninn fyrstu 20 mínúturnar! Þá geta bollurnar líka fallið. Ég opna bara ofninn eftir 25 mínútur en þá eru þær orðnar gullinbrúnar og tilbúnar en það fer auðvitað eftir ofnum.
  9. Kælið bollurnar og búið til fyllingu.
Marens
  1. Hitið ofninn í 150°C og setjið bökunarpappír á ofnskúffur.
  2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær freyða og hellið síðan sykrinum saman við í einni bunu á meðan þið eruð að hræra.
  3. Hrærið í 15-20 mínútur eða þar til þið getið haldið blöndunni fyrir ofan hausinn á ykkur án þess að nokkuð leki.
  4. Blandið lyftiduftinu varlega saman við með sleif eða sleikju.
  5. Búið til litlar marenskökur með ágætismillibili á ofnskúffurnar - annað hvort með skeið eða sprautu.
  6. Bakið í 30-45 mínútur - allt eftir stærð marensdúllanna og ofnsins.
Hvítsúkkulaðirjómi
  1. Bræðið hvíta súkkulaðið og leyfið því að kólna aðeins.
  2. Blandið flórsykrinum saman við þeytta rjómann og síðan hvíta súkkulaðinu.
Karamelluglassúr
  1. Setjið Freyju-karamellur og mjólk í skál og hitið í örbylgjuofni þar til karamellurnar eru bráðnaðar - samt ekki lengur en 30 sekúndur í senn.
  2. Blandið flórsykrinum saman við smátt og smátt og bætið meiru við ef þarf.
  3. Stráið sjávarsalti yfir glassúrinn og blandið vel saman.
Súkkulaðirjómi
  1. Blandið flórsykri og kakói saman við þeytta rjómann.
Kaffiglassúr
  1. Lagið kaffi og leyfið því að kólna aðeins.
  2. Blandið kaffi saman við flórsykur og setjið ofan á bollurnar. Rífið niður 70% súkkulaði og skreytið glassúrinn.

Umsagnir

Umsagnir