Þegar ég ákvað að ég ætlaði að vera með Oreo-þema í janúar þá var það fyrsta sem ég vissi að ég þyrfti abasalút að gera væri einhver rosaleg, tryllt ostakaka.
Eftir nokkrar tilraunir datt ég niður á eina mögnuðustu ostaköku sem ég hef á ævi minni búið til. Lag af Oreo með hnetusmjörsbragði, lag af pekanhnetum, lag af karamellu, lag af ostaköku og svo súkkulaði til að kóróna allt saman.
Ég á ekki nógu sterk lýsingarorð til að lýsa því hve geggjuð þessi kaka er – hún hefur einfaldlega breytt lífi mínu. Þannig að ef þú elskar ostakökur þá ættirðu tvímælalaust að skella í þessa. Uppskriftin er svo einföld en kakan tekur smá tíma. Trúið mér – hún er vel þess virði og meira til!
Rosaleg Oreo-ostakaka með karamellu
|
|
Hráefni
Botn
- 2bollar Oreo-kex með hnetusmjörsbragði, mulið
- 115g bráðið smjör
- 1/2bolli grófsaxaðar pekanhnetur
Karamella
- 170g smjör
- 1bolli púðursykur
Ostakaka
- 450g mjúkur Philadelphia-rjómaostur
- 3/4bolli flórsykur
- 1tsk vanilludropar
Súkkulaðibráð
- 1/2bolli súkkulaði
- 1/4bolli mjólk eða rjómi
- Oreo-kex með hnetusmjörsbragði(til að skreyta)
- pekanhnetur(til að skreyta)
Leiðbeiningar
Botn
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið hringlaga bökunarform, sirka 18-20 sentímetra. Mér finnst líka gott að setja bökunarpappír í botninn til að gera það auðveldara að losa kökuna þegar hún er tilbúin.
- Myljið Oreo-kex í matvinnsluvél og blandið því saman við smjörið.
- Þrýstið Oreo-blöndunni í botninn á forminu og bakið í 10 mínútur.
- Dreifið pekanhnetum yfir botninn og leyfið honum að kólna.
Karamella
- Blandið smjöri og púðursykri saman í potti. Leyfið blöndunni að ná suðu yfir meðalhita og passið ykkur að hræra stanslaust.
- Lækkið hitann og leyfið blöndunni að malla í 10 mínútur, eða þangað til hún þykkist aðeins.
- Hellið karamellunni yfir pekanhneturnar og leyfið þessu að kólna í 1-2 klukkustundir inni í ísskáp.
Ostakaka
- Blandið öllum hráefnum vel saman og hellið yfir karamelluna. Kælið aftur í 1-2 klukkustundir í ísskáp.
Súkkulaðibráð
- Hitið mjólk eða rjóma í örbylgjuofni. Setjið súkkulaðið ofan í vökvann og leyfið því að sitja í 1 mínútu á meðan það bráðnar. Hrærið síðan vel þar til allt er blandað saman.
- Hellið súkkulaðinu yfir kökuna og skreytið með því sem þið viljið - ég notaði Oreo-kex og pekanhnetur.
- Skellið kökunni aftur í ísskáp í 1-2 klukkustundir, takið hana síðan úr forminu og berið fram.