Ó, júlí! Hve gómsætur þú verður! Samstarfskona mín nefnilega stakk upp á sykurpúðaþema sem ég greip á lofti enda mikill aðdáandi sykurpúða eins og litlu krakkarnir. Mér finnst þetta eðal sumarþema þar sem mörgum finnst gaman að grilla sykurpúða eftir góða grillmáltíð.
Ég byrja á algjörlega tryllingslega góðum Rice Krispies- og sykurpúðastykkjum sem eru svo fáránlega góð að þau klárast á svipstundu. Maður getur bara ekki hætt!
Og uppskriftin góða fólk er svo einföld að það hálfa væri nóg. Æðislegur sumareftirréttur.
Rice Krispies- og sykurpúðabrjálæði
|
|
Hráefni
Botn
- 115g mjúkt smjör
- 1bolli sykur
- 2 Nesbú-egg
- 3/4bolli Kornax-hveiti
- 1tsk sjávarsalt
- 1/2tsk lyftiduft
- 35g brætt súkkulaði
Sykurpúðalag
- 2bollar litlir sykurpúðar(ég kaupi mína í Söstrene Grene)
Súkkulaðilag
- 170g súkkulaði
- 1/2bolli hnetusmjör
- 1bolli Rice Krispies
Leiðbeiningar
Botn
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið ílangt form, ca 30-33 sentímetra að lengd.
- Blandið öllum hráefnum nema súkkulaði vel saman. Bætið því næst súkkulaðinu saman við og blandið vel saman.
- Skellið þessu inn í ofn í 15-17 mínútur.
Sykurpúðalag
- Dreifið sykurpúðunum yfir botninn og setjið aftur inn í ofn í um 3 mínútur.
- Takið formið út úr ofninum og leyfið þessu að kólna.
Súkkulaðilag
- Bræðið súkkulaði og hnetusmjör saman í potti yfir vægum hita.
- Blandið Rice Krispies saman við og smyrjið yfir sykurpúðalagið.
- Kælið í um klukkustund og njótið síðan.