Auðvitað varð að vera marens líka. Ég meina marens með Snickers – verður það eitthvað betra?! Nei, held ekki.
Og til að gera þennan marens aðeins dýrðlegri en hann er í einfaldleika sínum þá bætti ég við súkkulaðirjóma til að færa hann upp á æðra svið í þessari tilveru.
Ég hef nú þegar farið yfir marensreglurnar með ykkur og því um að gera að dusta rykið af þeim og hlaða í þessa stórkostlegu sykur- og eggjadásemd. Þið sjáið ekki eftir því!
Marens með Snickers og súkkulaðirjóma
|
|
Hráefni
- 4 Nesbú-eggjahvítur
- 1bolli sykur
- 2tsk lyftiduft
- 500ml rjómi
- 2msk kakó
- 3msk flórsykur
- 4 Snickers
- 60g dökkt súkkulaði
- 2msk hnetusmjör
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 150°C og klæðið ofnplötur með bökunarpappír.
- Þeytið eggjahvíturnar í 1 til 2 mínútur eða þangað til þær freyða vel.
- Bætið sykrinum út í eggjahvíturnar á meðan þið hrærið, sirka einni matskeið í einu.
- Þeytið þessa blöndu í 15 til 20 mínútur eða þar til þið getið haldið skálinni á hvolfi og ekki dropi lekur niður. Bætið lyftiduftinu við og hrærið aðeins.
- Setjið sirka eina matskeið af blöndunni á ofnplöturnar með góðu millibili. Þið ættuð að fá 12 til 14 kökur.
- Bakið í 30 mínútur og leyfið kökunum að kólna í ofninum í um það bil tvo klukkutíma.
- Þeytið rjómann og bætið kakói og flórsykri saman við þegar þið eruð alveg að verða búin að þeyta rjómann.
- Skellið góðri slummu af rjómanum á marenskökurnar.
- Skerið Snickers-stykkin í litla bita og dreifið þeim ofan á rjómann.
- Bræðið súkkulaðið og drissið því yfir marensinn.
- Bræðið hnetusmjörið í um það bil 30 sekúndur í örbylgjuofni og drissið því yfir marensinn.