Mér finnst algjör óþarfi að finna einhver dásamleg lýsingarorð fyrir smákökur sem innihalda Kit Kat. Eruð þið ekki sammála?
Maður fær einfaldlega ekki leið á Kit Kat og ekki á þessum kökum heldur.
        Kit Kat-kökur    
                | 
             | 
                                
             | 
                    
        Ingredients    
                - 95g mjúkt smjör
 - 3/4bolli púðursykur
 - 1/4bolli sykur
 - 1 egg
 - 2tsk vanilludropar
 - 2bollar hveiti
 - 2tsk maizena
 - 1tsk matarsódi
 - 1/2tsk salt
 - 225g Kit Kat, saxað
 
        Instructions    
                - Blandið saman smjöri, púðursykri og sykri í skál. Bætið því næst eggi og vanilludropum við blönduna.
 - Blandið hveiti, maizena, matarsóda og salti saman í annarri skál.
 - Blandið þurrefnum varlega saman við smjörblönduna þar til allt er vel blandað saman. Blandið Kit Kat-bitunum saman við með sleif.
 - Kælið deigið í að minnsta kosti eina klukkustund.
 - Hitið ofninn í 170°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur. Búið til litlar kúlur úr deiginu og setjið á ofnplötur. Bakið í átta mínútur. Þessar eru góðar bæði sjóðandi heitar og kaldar.