Nú nálgast mín uppáhaldshátíð – smákökuhátíðin mikla!
Þá fer ég alveg á flug og reyni í gríð og erg að finna einhverjar geggjaðar nýjar uppskriftir að smákökum, með misjöfnum árangri.
Ég byrja þessa miklu smákökuhátíð að þessu sinni með samlokukökum sem heppnuðust svona líka vel. Svo vel að þær eru skírðar í höfuðið á mér, eða JólaLiljur.
Þessar samlokukökur eru jól í einum (jú, eða ansi mörgum) bitum. Þær eru stökkar, mjúkar, djúsí og allt þar á milli. Algjör himnasending sem varð til í litla eldhúsinu mínu alveg óvænt.
Það eru einmitt skemmtilegustu uppskriftirnar – þessar sem koma algjörlega óvænt!
Gleðilega smákökuhátíð!
Samlokukökur sem hringja inn jólin
|
|
Hráefni
Kökur
- 115g mjúkt smjör
- 1/2bolli hrásykur
- 1/2bolli hvítur sykur
- 1 1/2tsk vanilludropar
- 1 egg
- 1bolli hveiti
- 1/4tsk matarsódi
- 1/2tsk lyftiduft
- 1/2tsk sjávarsalt
- 1/4tsk negull
- 1bolli haframjöl
Krem
- 100g mjúkt smjör
- 2msk hlynssíróp
- 200 g flórsykur
- 1tsk vanilludropar
- 1/2tsk kanill
- 2-3msk karamellusósa
Leiðbeiningar
Kökur
- Setjið smjör, hrásykur og sykur í skál og þeytið vel saman í nokkrar mínútur. Bætið vanilludropunum við og hrærið. Bætið egginu við og hrærið vel.
- Bætið hveiti, matarsóda, lyftidufti, salti og negul saman við og hrærið í blöndunni. Loks er haframjöl sett saman við og aðeins hrært saman við með sleif eða sleikju. Leyfið deiginu að kólna í um hálftíma.
- Hitið ofninn í 180°C og setjið smjörpappír á 2 ofnplötur. Búið til litlar kúlur úr deiginu, raðið þeim á plöturnar og fletjið út með lófanum. Bakið í 8-10 mínútur, eða þar til brúnirnar á kökunum eru farnar að brúnast. Leyfið kökunum að kólna alveg áður en kremið er sett á.
Krem
- Þeytið krem og hlynssíróp vel saman í 5-10 mínútur. Bætið restinni af hráefnunum saman við og þeytið í aðrar 5-10 mínútur.
- Smyrjið kreminu á annan helminginn af kökunum og lokið með hinum helmingnum af kökunum. Njótið vel og lengi!