Þeir sem þekkja mig og minn bakstur vita að ég veit fátt skemmtilegra en að baka eitthvað sem leynir á sér.
Mér áskotnaðist hunang og þar sem ég er minnsta tedrykkjukona í heimi ákvað ég að finna út hvað ég gæti bakað gómsætt úr þessu forláta hunangi. Útkoman eru þessar kökur sem leyna á sér og spilar þema mánaðarins, hvítt súkkulaði, stórt og mjög mikilvægt hlutverk í þessari uppskrift.
Hunangskökur með óvæntum glaðningi
|
|
Hráefni
Kökur
- 3/4bolli Kornax-hveiti
- 1/4tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 60g mjúkt smjör
- 1/2bolli sykur
- 1 stórt egg
- 1/8 bolli hunang
- 1tsk vanilludropar
- 1/4bolli mjólk
Fylling
- 60g grófsaxað hvítt súkkulaði
- 1/2msk hunang
- 1/8 bolli rjómi
Krem
- 115g mjúkt smjör
- 3bollar flórsykur
- 1tsk vanilludropar
- 2-3msk nýmjólk
Leiðbeiningar
Kökur
- Hitið ofninn í 180°. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og setjið til hliðar.
- Blandið smjöri og sykri vel saman og því næst egginu.
- Blandið hunangi og vanilludropum vel saman við smjörblönduna.
- Blandið þurrefnum og mjólk saman við smjörblönduna, sitt á hvað í þremur hollum. Skiptið deiginu á milli möffinsforma og bakið í 17-20 mínútur.
Fylling
- Setjið hvítt súkkulaði og hunang í skál. Hitið rjómann þar til hann sýður og hellið honum yfir súkkulaðið og hunangið.
- Leyfið blöndunni að standa í um mínútu. Hrærið síðan þar til súkkulaðið er bráðnað.
- Skerið holu í bollakökurnar þegar þær hafa kólnað - passið bara að skera ekki alla leið í gegn!
- Setjið dass af fyllingu í hverja holu.
Krem
- Blandið öllu vel saman og skreytið kökurnar að vild. Ég missti mig aðeins með sprautuna!