Ég er að segja ykkur það krakkar – þetta er ein besta brúnka sem ég hef bakað! En ég er líka afskaplega hrifin af lakkrís – sérstaklega þegar honum er blandað við súkkulaði.
En ef þið eruð ekki hrifin af lakkrís getið þið bakað þessa brúnku án alls lakkrís. Þá er þetta bara mjög hefðbundin og góð brúnka – uppskrift sem þið getið leikið ykkur með.
Munið bara að hræra ekkert alltaf mikið heldur bara þangað til allt er rétt svo blandað saman. Annars verður brúnkan þurr en ekki blaut. Við viljum það ekki!
Gjörsamlega geggjuð lakkrísbrúnka
|
|
Hráefni
Brúnka
- 30g kakó frá Kötlu
- 1/4tsk sjávarsalt frá Kötlu
- 115 ml sjóðandi vatn
- 60g suðusúkkulaði frá Lindu(grófsaxað)
- 45g brætt smjör frá MS
- 200ml ólífuolía frá Gestus
- 2 Nesbú-egg
- 1 Nesbú-eggjarauða
- 1tsk vanilludropar frá Kötlu
- 325g sykur
- 175g Kornax-hveiti
- 100g piparfylltar lakkrísreimar frá Appollo(skornar í bita)
- 2msk lakkrísduft Johan Bülow
Lakkrísgljái
- 8-10 lakkrískaramellur frá Góu
- 2msk rjómi frá MS
- 50g lakkrísreimar frá Appollo
Leiðbeiningar
Brúnka
- Hitið ofninn í 180°C og takið til brúnkuform, 20x20 sentímetra. Klæðið það með smjörpappír og látið pappírinn ná upp með hliðunum.
- Blandið kakó, salti og sjóðandi vatni saman í stórri skál og hrærið. Bætið súkkulaðinu saman við og hrærið þar til allt er bráðnað saman.
- Bætið smjöri og olíu saman við og því næst eggjum, eggjarauðu og vanilludropum.
- Hrærið sykri saman við og því næst hveitinu.
- Bætið lakkrísreimabitum og lakkrísdufti saman við og hellið deiginu í form.
- Bakið í 25-30 mínútur og leyfið kökunni að kólna lítið eitt áður en gljáanum er hellt yfir.
Lakkrísgljái
- Setjið karamellur og rjóma í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur í senn þar til allt er bráðnað saman. Munið að hræra eftir hverjar 30 sekúndur.
- Hellið lakkrísgljáa yfir kökuna og skreytið með ófylltum lakkrísreimum.