Ég elska vanillubúðing. Og ég elska ostakökur. En hvað myndi gerast ef ég myndi blanda þessu tvennu saman? Jú, það gerðist nefnilega eitthvað stórkostlegt í eldhúsi Blöku.
Þið bara verðið að prófa þessa ofureinföldu ostaköku! Og ef þið eruð enn að kaupa pakkabúðing út í búð þá mæli ég hiklaust með að þið búið til ykkar eigin búðing. Það er fáránlega einfalt og búðingurinn er bara miklu betri – hvort sem hann er borinn fram heitur eða kaldur. Ég lofa!
Þessa köku verðið þið að prófa. Hún mun breyta lífi ykkar til hins betra.
Bananaostakaka sem kemur á óvart
|
|
Hráefni
Botn
- 1 2/3bolli mulið vanillukex(ekkert krem)
- 55g bráðið smjör
- 1/4bolli sykur
Ostakaka
- 2bollar mjólk
- 3 Nesbú-eggjarauður(þeyttar)
- 1/3bolli Kornax-hveiti
- 2/3bolli sykur
- smá salt
- 1 1/2tsk vanilludropar
- 450g mjúkur rjómaostur
- 3 bananar(skornir í sneiðar)
- karamellukurl
Leiðbeiningar
Botn
- Hitið ofninn í 180°C og takið til eldfast mót eða hringlaga form, sirka 20 sentímetra stórt.
- Blandið öllum hráefnum vel saman og þrýstið blöndunni í botninn á forminu.
- Bakið í 10 mínútur og leyfið botninum að kólna alveg.
Ostakaka
- Byrjum á búðingnum. Blandið hveiti, sykri og salti vel saman í potti með písk.
- Blandið mjólk varlega saman við og hitið yfir meðalhita. Hrærið stanslaust í blöndunni þar til hún byrjar að sjóða svo það komi ekki kekkir.
- Þegar blandan er búin að þykkna hellið þið sirka 2 bollum af henni saman við eggjarauðurnar í lítilli skál og hrærið vel saman. Síðan hellið þið því aftur saman við búðinginn yfir hita og leyfið þessu að malla þar til þykktin minnir á búðing. Hrærið samt stanslaust í blöndunni.
- Takið af hellunni og bætið vanilludropum saman við.
- Þeytið rjómaost í annarri skál þar til hann er léttur og ljós og blandið síðan búðingnum saman við.
- Hellið helmingnum af búðingnum ofan á botninn. Raðið síðan bananasneiðum ofan á og hellið hinum helmingnum ofan á.
- Skreytið með karamellukurli, hyljið með plastfilmu og kælið í ísskáp, helst yfir nótt.