Ég átti afmæli um daginn (til hamingju ég!) og ákvað að skella í eina krækiberjaköku á afmælisdaginn þar sem ég var nýbúin í berjamó.

Mál þróuðust þannig að þessi kaka varð hveitilaus. Ekki spyrja mig af hverju en ég var í einhverju heilsustuði þennan dag. Þessi kaka er meira að segja glútenlaus og lítið mál að gera hana vegan!

Nóg um vegna og glúten og hvað þetta allt heitir – það sem mestu máli skiptir er að þessi kaka er rosalega góð! Ég hafði aldrei bakað með krækiberjum áður og er mjög ánægð að hafa prófað það. Krækiberin eru reyndar ekki bragðmestu berin í bransanum, þannig að ég hjálpaði þeim aðeins með því að bæta við nokkrum bláberjum og hindberjum. Ég mæli með því!

Og hér er hún – hveitilaus og alls laus, en dásamlega falleg og auðvelt að frysta hana ef þið viljið eiga eitt stykki gúmmulaði í frystinum þegar gesti ber að garði algjörlega óvænt!

Njótið vel og lengi elsku dúllurnar mínar.


Hveitilaus krækiberjakaka
Hráefni
Fylling
Botn
Leiðbeiningar
Fylling
  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til hringlaga form sem er sirka 20-22 sentímetra stórt. Smyrjið það með smjöri, kókosolíu eða bökunarspreyi.
  2. Blandið öllum hráefnum í fyllinguna vel saman og leyfið því að standa þar til botninn er tilbúinn.
Botn
  1. Blandið möndlumjöli, haframjöli, hlynsírópi, lyftidufti og salti vel saman í skál.
  2. Bætið smjörinu saman við og vinnið það inn í deigið með höndunum. Þetta tekur smá tíma en það er mikilvægt að allt smjörið blandist vel saman við restina af hráefnunum.
  3. Þrýstið rúmlega helmingnum af deiginu í botninn á forminu.
  4. Hellið fyllingunni yfir botninn en passið að skilja allan vökva eftir í skálinni. Hér er gott að nota götótta ausu. Ef allur vökvinn af fyllingunni fylgir með í bökuna verður hún of blaut.
  5. Blandið hnetum saman við restina af botnsdeiginu og myljið yfir berjafyllinguna.
  6. Bakið í 40-45 mínútur og leyfið kökunni að kólna alveg áður en þið skerið hana. Nammi!

Umsagnir

Umsagnir