Ég er nýlega komin heim frá Taílandi sem var án efa ferð lífs míns. Þriggja mánaða ævintýri. Hjá mér vaknar alltaf mikil fortíðarþrá á flugvellinum og ég get barasta ekki sleppt því að kaupa mér nammi í fríhöfninni – þó það sé orðið rándýrt.
Ég kaupi náttúrulega alltaf það sama og eitt af því sem ég fjárfesti í dýrum dómum er Toblerone – og alltof mikið af því. Þess vegna ákvað ég að hlaða í eitt stykki smákökuporsjón með fullt af Toblerone. Því súkkulaðið má auðvitað ekki skemmast! Guð forði okkur frá því.
Toblerone-smákökur
|
|
Hráefni
- 1 1/3bolli hveiti
- 1tsk maizena
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/4tsk salt
- 115g mjúkt smjör
- 6msk púðursykur
- 1/4 bolli sykur
- 1 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 200g Toblerone, grófsaxað
Leiðbeiningar
- Blandið saman hveiti, maizena, matarsóda og salti í skál og setjið til hliðar.
- Hrærið smjör, púðursykur og sykur vel saman. Blandið því næst eggi og vanilludropum saman við.
- Blandið þurrefnablöndunni varlega saman við.
- Saxið Toblerone-ið og blandið saman við með sleif.
- Setjið deigið inn í ísskáp yfir nótt. Svo er líka bara hægt að svindla og henda því inn í frysti í klukkutíma eða svo.
- Hitið ofninn í 190°C og klæðið ofnplötur með bökunarpappír.
- Búið til kúlur úr deiginu, raðið þeim samviskusamlega á plöturnar og bakið í 10 mínútur.