Ó, Maltesers. Við hittumst á ný!

Hér er enn á ný uppskrift úr bókinni minni, Minn sykursæti lífsstíll, en myndirnar tók Sunna Gautadóttir, ljósmyndari.

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst Maltesers gjörsamlega ávanabindandi nammi. Ég á í ástar-haturssambandi við það. Ég elska hvað það er gott en hata að ég fæ mig ekki til að stoppa átið eftir að ég byrja. Nútímavandamál í hnotskurn.

Fyrir þá sem vilja ekki, þora ekki eða nenna ekki að baka er þetta kjörið kruðerí. Ofureinfalt, stökkt og brakandi.


Ómótstæðilegir Maltesers-bitar sem þarf ekki að baka
Hráefni
Leiðbeiningar
  1. Takið til kassalaga form sem er 20x20 sentímetra stórt. Klæðið það með smjörpappír og leyfið honum að ná aðeins upp hliðarnar.
  2. Myljið kexið í spað. Setjið smjör, súkkulaðið og síróp í skál sem þolir örbylgjuofn og hitið í 30 sekúndur í senn þar til allt er bráðnað. Hrærið vel saman.
  3. Hrærið hafrakexinu saman við smjörblönduna með sleif eða sleikju. Takið um 20 Maltesers-kúlur frá og blandið restinni saman við smjörblönduna með sleif eða sleikju.
  4. Hellið blöndunni í formið og þrýstið niður með skeið. Þrýstið síðan Maltesers-kúlunum sem þið tókuð frá ofan í kökuna. Leyfið kökunni að jafna sig í ísskáp í um 4 klukkustundir. Þessi er svakaleg!

Umsagnir

Umsagnir

This entry was posted in Kökur.