Ég elska að koma fólki á óvart! Þess vegna finnst mér æðislega gaman að baka gúmmulaði sem kemur á óvart. Eins og þessar bollakökur.
Þessi fylling krakkar, hún er ekki af þessum heimi! Ég bætti um betur og bjó til hindberjasykur til að drissa ofan á kökurnar. Þið getið sleppt honum, en þá væruð þið að missa af svo ofboðslega miklu!
Þessa uppskrift er að finna í bókinni minni, Minn sykursæti lífsstíll, og var það Sunna Gautadóttir sem myndaði kökurnar, eins og allt annað í bókinni.
Gerið ykkur glaðan dag með þessum glaðningi!
Kókos- og hindberjaglaðningur
|
|
Hráefni
Bollakökur
- 225g mjúkt smjör
- 1 3/4bolli sykur
- 3 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 1/2tsk sjávarsalt
- 1/2tsk lyftiduft
- 1/2tsk matarsódi
- 2 3/4bolli hveiti
- 1 3/4bolli kókosrjómi(coconut cream)
Hindberjafylling
- 3msk maíssterkja
- 1/2bolli sykur
- 170g frosin hindber
- 1/3bolli vatn
Krem
- 225g mjúkt smjör
- 3 1/2bolli flórsykur
- 4msk kókosmjólk
- 1tsk vanilludropar
Hindberjasykur
Leiðbeiningar
Bollakökur
- Hitið ofninn í 160°C og takið til múffuform, ca 25 stykki.
- Blandið smjöri og sykri vel saman þar til blandan er létt og ljós. Bætið vanilludropunum saman við og því næst eggjunum, einu í einu.
- Blandið salti, lyftidufti, matarsóda og hveiti saman í annarri skál. Hellið kókosrjómanum í litla skál og hrærið vel uppí honum.
- Blandið hveitiblöndunni og rjómanum saman við smjörblönduna á víxl, byrjið og endið á hveitinu. Deilið deiginu á milli múffuformanna og bakið í um 28 mínútur. Leyfið kökunum að kólna.
Hindberjafylling
- Blandið maíssterkju og sykri saman í litlum potti og þeytið þar til það er búið að blandast vel saman. Bætið hindberjum og vatni saman við og þeytið.
- Náið upp suðu á blöndunni og leyfið henni að sjóða í 2-4 mínútur, eða þar til hún hefur þykknað. Standið yfir blöndunni og merjið hindberin með sleif eða sleikju þegar blandan sýður.
- Setjið blönduna í skál, hyljið hana með plastfilmu og leyfið henni að kólna í ísskápnum.
Krem
- Þeytið smjörið í 2-3 mínútur og bætið því næst restinni af hráefnunum saman við.
- Skerið kökubút úr kökunum miðjum, en passið að fara ekki alveg niður á botn. Setjið kalda hindberjafylllinguna í kökurnar og skreytið með kreminu.
Hindberjasykur
- Blandið vökvanum og sykrinum saman þar til áferðin er líkt og um púðursykur að ræða. Drissið yfir bollakökurnar og geymið restina í loftþéttu íláti. Mér finnst líka dásamlegt að drissa kókosmjöli yfir kökurnar. Nammi, namm!