Nú er ég nýkomin úr sumarbústað en ég var búin að ákveða að gera einhverjar tilraunir þar með nýjasta uppáhaldið mitt: pipardöðlur.
Ég gerði algjör byrjendamistök og gleymdi að taka með mér kökuform en ég reddaði því einfaldlega með því að búa til kökuform úr álpappír. Ég mæli með því ef þið eruð í vanda!
Síðan fæddist þessi elska. Lakkrísskyrterta með pipardöðlubotni. Þarf ég að segja eitthvað meira? Þetta er hreinlega eitt af mínum bestu verkum allra tíma!
Njótið vel og lengi!
Lakkrísskyrterta með pipardöðlubotni
|
|
Hráefni
Botn
- 200g pipardöðlur
- 120g smjör
- 4msk púðursykur
- 1-1/2 bolli Rice Krispies
Skyrfylling
- 2dósir lakkrísskyr(400 g)
- 1 1/2-2dl rjómi
- 1tsk vanilludropar
- 2msk flórsykur
Leiðbeiningar
Botn
- Takið til form sem er sirka 18-20 sentímetra stórt. Ég ákvað að gera mína köku kassalaga en auðvitað er það bara smekksatriði. Og athugið að það er lítið mál að tvöfalda þessa uppskrift því þessi kaka klárast á núll einni.
- Setjið döðlur, smjör og púðursykur í pott og bræðið saman yfir meðalhita.
- Látið blönduna sjóða og malla þar til döðlurnar hafa nánast leysts upp og minna á karamellur, í sirka 3-5 mínútur. Gott er að þrýsta á döðlurnar með viðarsleif á meðan þetta mallar. Þetta er í raun líkt og hið hefðbundna döðlugott sem allir elska.
- Takið pottinn af hellunni og blandið Rice Krispies saman við eftir smekk.
- Þrýstið blöndunni í botninn á forminu og kælið alveg inni í ísskáp.
Skyrfylling
- Þeytið rjómann. Hrærið hin hráefnin vel saman og blandið síðan rjómanum varlega saman við.
- Skellið blöndunni ofan á botninn og aftur inn í ísskáp í 2-3 tíma. Svo er náttúrulega tryllt að strá smá pipardufti yfir kökuna rétt áður en hún er borin fram!